Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Hundruð ungra manna þegar gengnir til liðs við herinn

  • What: Croatia reinstates military conscription
  • Impact: Young men in Croatia are being called to military service due to regional security concerns
Read Full Article →

Stjórnvöld í Króatíu hafa ákveðið að taka upp herskyldu að nýju eftir að hafa afnumið hana fyrir átján árum. Flest ríki á Balkanskaga hafa aukið útgjöld til hermála. Þegar hefur fjöldi ungra karlkyns Króata skráð sig til tveggja mánaða þjálfunar í hernum. Herskyldan nær aðeins til karlmanna. Varnarmálaráðherrann Ivan Anušić segir í samtali við BBC að innrásarstríð Rússa í Úkraínu sé meginástæða stefnubreytingarinnar. „Það ríkti mikill stöðugleiki í Króatíu og allt í kringum okkur en nú er staðan gerbreytt,“ segir Anušić . Undanfarin fjögur ár hafi veröldin ekki aðeins horft upp á yfirgangssemi Rússa í Úkraínu heldur hafi samherjar þeirra í Evrópu einnig tekið að færa sig upp á skaftið. Aðeins Ungverjaland skilur Króatíu frá Úkraínu. Aleksandar Vučić Serbíuforseti hefur boðað endurinnleiðingu herskyldu innan árs auk þess sem útgjöld til hernaðar hafa verið hækkuð verulega. Það hefur ýft fjaðrir ráðamanna í Kósóvó og Bosníu. Serbar hafa einnig lýst ugg yfir nýju hernaðarbandalagi Króata við Kósóvó og Albaníu. Hernaðarsérfræðingurinn James Ker-Lindsay segir aukinn hernaðarviðbúnað Balkanríkjanna auka á spennuna því þau öll telji honum beint gegn sér. Króatía bætist í hóp þeirra Atlantshafsbandalagsríkja sem hafa innleitt herskyldu að nýju. Hin eru Grikkland, Tyrkland ásamt löndum Skandinavíu og ríkjunum við Eystrasalt.

Share this article