- What: German Chancellor Friedrich Merz visits China for talks on trade, security, and Ukraine.
- Impact: Discussions aim to balance cooperation and competition with China.
Friedrich Merz kanslari Þýskalands skömmu fyrir brottför til Kína.AP/dpa / Michael Kappeler Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, lenti í Kína í nótt í sinni fyrstu opinberu heimsókn til Kína. Með í för er stór viðskiptasendinefnd sem mun ásamt Merz funda með XI Jinping, forseta Kína, um viðskipti og efnahagsmál en Kína er ein helsta viðskiptaþjóð Þýskalands. Þá er einnig búist við að Merz muni ræða við Xi Jinping um öryggis- og varnarmál og hvetja Kínaforseta til að setja pressu á Rússa til að binda enda á stríðið í Úkraínu. Merz og sendinefndin mætir til kvöldverðar í boði XI Jinping í kvöld að staðartíma í Kína.