Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir og sonur hennar Sebastian eru á leiðinni heim til Íslands í gegnum Frakkland. Guðlaug hefur búið síðastliðinn 14 ár í Barein en hún og sonur hennar ákváðu að flýja land eftir að Íranir hófu að gera árásir á landið eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir sínar á Íran. Guðlaug var stödd í Sádí-Arabíu á leið til höfuðborgarinnar Riyadh þegar hún ræddi við Morgunútvarpið. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins aðstoðaði hana og fjölskyldu hennar við að komast í flug til Parísar í dag. Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir og sonur hennar eru á leið í flug frá Riyadh í Sádí Arabíu í dag. Hún hefur búið í Barein síðastliðin 14 ár. Hún segir undanfarnar nætur hafa verið hræðilegar og að eldflaugum og sprengjum frá Íran hafi rignt yfir eyjuna. „Við erum á leiðinni þangað eftir mjög svo erfiða nótt,“ segir hún. „Við lögðum af stað fyrir tveimur tímum og við erum hérna þrjú, ég og Sebastian sonur minn og Jóhanna Gústafsdóttir sem er sundþjálfari í Barein.“ Guðlaug segir að loftvarnarsírenurnar í Barein fari í gang þegar sprengjur eða eldflaugar ná í gegnum loftvarnarkerfi landsins. „Það var svolítið mikið af þeim í nótt svo það var ekki mikið um svefn,“ segir Guðlaug sem tekur fram að nóttin þar á undan hafi einnig verið hræðileg. Árásir Íran farnar að hæfa íbúðarhúsnæði Guðlaug segir að 32 hafi slasast í árásunum í gær, þar af fimm börn. Árásum Íran sé ekki einungis beint að bandarískum herstöðvum og innviðum heldur beinist þær einnig að íbúðarbyggingum og almennum borgurum. „Ég held að þetta sé bara komið út í það núna að þeir eru bara að gera árásir, segir Guðlaug. Fyrst hafi þær aðallega beinst gegn herstöðvum Bandaríkjamanna og olíubirgðastöðvum en sprengjur hafi nýverið verið farnar að hæfa íbúðarhúsnæði og önnur svæði þar sem almennir borgarar eru. „Við höfum samt verið ágætlega góðar í hverfinu sem við búum í, það hefur ekki neitt komið nálægt okkur,“ segir hún. Guðlaug segir að lokað sé fyrir allt flug frá Barein en hún vonast til að allt flug frá Riyadh sé öruggt. Við verðum komin í loftið eftir fimm tíma, það verður geggjað að komast í burtu frá þessum látum, þetta er alveg komið gott, segir Guðlaug.