Innlent | mbl | 5.3.2026 | 17:00 Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Guðlaug og sonur hennar Sebastian. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran Vísar ásökunum um árásina á bug Sonur síðasta Íranskeisara vill taka við tímabundið NATO: Tyrkland var skotmarkið Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda » Fleiri tengdar fréttir Íslensk kona sem búið hefur í Barein í 14 ár segir sírenur ekki hafa ómað í rúman sólarhring. Það gefi von um öryggi - og þó. Í samtali við mbl.is segir Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir að þrátt fyrir að engar sírenur hafi heyrst í um sólarhring séu drónaárásir enn gerðar á landið. Til dæmis hafi dróni verið skotinn niður í nótt og brotlent ekki langt frá flugstöðinni í Barein. Segir Guðlaug að einhverjar skemmdir hafi orðið, en þó ekkert mannfall. Frétt af mbl.is Sprengingar óma í Katar og Barein Vilja ekki valda mikilli hræðslu „Þeir vilja ekki valda mikilli hræðslu hjá krökkum, las ég einhvers staðar,“ segir Guðlaug um þögn sírenanna. Hún segir að fyrstu dagana eftir að árásir hófust hafi meira borið á því þegar drónar og flugskeyti voru skotin niður í landinu, en minna fari fyrir því núna. „En kannski er maður eitthvað minna að pæla í því af því að sírenurnar fara ekki í gang.“ Frétt af mbl.is Barein hefur skotið niður tugi flugskeyta og dróna „Við slökum allavega meira á“ Aðspurð segir hún að minni hræðsla fylgi þögninni. Bendir hún til dæmis á að hún hafi fengið skilaboð í dag um opnun nýs klúbbs á svæðinu. Þá hafi verslunarmiðstöðin einnig verið opnuð á ný. „Ég veit ekki hvort að þetta sé út af því að sírenurnar eru ekkert að koma á en við slökum allavega meira á. Við erum ekki að vakna á tveggja tíma fresti á nóttunni. Þetta er svolítið breytt, en það er kannski bara einhver fölsk von.“ Frétt af mbl.is Nýtt kort sýnir umfang átakanna síðustu daga „Pínu absúrd“ Spurð hvort hún hafi verið í samskiptum við borgaraþjónustu íslenska utanríkisráðuneytisins segir Guðlaug að þjónustan hafi símanúmer hennar og netfang. Hún og sonur hennar, sem býr með henni í Barein, hafi þó ekki leitað eftir aðstoð þaðan. „Maður hefði aldrei haldið að þetta myndi gerast. Það er svo friðsælt hérna og þetta er einhver pínulítil eyja í Persaflóanum. En þetta er náttúrulega búið að vera rosalega spes ástand, verandi sveitastelpa frá litlu eyjunni Íslandi að byrja að heyra í sprengjum og sírenum. Það er pínu absúrd,“ segir Guðlaug. Frétt af mbl.is Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Vonar að þessu fari að linna Sprengingar ómuðu í Manama í Barein í dag og segist Guðlaugu hafa brugðið þegar hún las um það í fréttum, sérstaklega í ljósi þess að hún og sonur hennar vöknuðu ekki við nein læti í nótt. „Kannski er þetta eitthvað falskt öryggi, að hafa ekki sírenurnar, en auðvitað vonar maður ekki. Maður vonar bara að þessu fari að linna.“ Frétt af mbl.is Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda Tengdar fréttir Íran Vísar ásökunum um árásina á bug Sonur síðasta Íranskeisara vill taka við tímabundið NATO: Tyrkland var skotmarkið Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Ný forysta verður kosin um helgina Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Forsendurnar riða til falls Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Ný forysta verður kosin um helgina Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu „Öryggið er fyrir öllu“ Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“