Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð

  • What: Icelandic companies are using AI but lack clear policies
  • Impact: 48% of companies use AI, but many lack formal guidelines
Read Full Article →

Tækni & vísindi | mbl | 10.3.2026 | 11:15 Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Fyrirtæki sem starfa við byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hafa mestar áhyggjur af notkun gervigreindar. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind » Fleiri tengdar fréttir Helmingur fyrirtækja hér á landi notar einhvers konar gervigreindartækni í störfum. Mun lægra hlutfall getur tilgreint í hvaða verkefnum tæknin er notuð og enn færri hafa mótað formlega stefnu um notkun hennar. Þetta kemur fram í könnun sem Hagstofa Íslands framkvæmdi. Niðurstöðurnar sýna að 48% fyrirtækja nota gervigreindarhugbúnað af einhverju tagi og 50% segjast nota tilgreinda gervigreindartækni. 14% fyrirtækja hafa mótað sér stefnu um notkun gervigreindar. Minnihluti með greidda áskrift Fyrirtæki sem starfa við sérfræðilega, vísindalega og tæknilega starfsemi nota flest einhverja tegund af gervigreind. Þeir sem starfa við vatnsveitu, fráveitu og meðhöndlun úrgangs og afmengun nota tæknina síst. Fyrirtæki sem starfa við byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hafa mestar áhyggjur af notkun gervigreindar. Í tilkynningu frá Hagstofunni kemur fram að niðurstöðurnar bendi til að almenn notkun gervigreindar sé útbreiddari en markviss innleiðing hennar í afmörkuð verkefni og verklag. Alls nota 46% fyrirtækja hugbúnað á Internetinu svo sem ChatGPT eða sambærilegar lausnir. Þar af nota 39% greidda áskrift að einhverju marki og 37% ókeypis áskrift. 9% fyrirtækja nota einungis greidda áskrift. Smærri fyrirtæki með meiri áhyggjur Niðurstöðurnar sýna einnig að textatengd notkun sé útbreiddust. Alls nota 45% fyrirtækja tækni sem greinir ritmál eða texta, 27% nota tækni sem býr til ritað eða talað mál og 22% nota tækni sem býr til myndir, myndbönd eða hljóð. Alls tilgreina 31% fyrirtækja einhverjar áhyggjur af notkun gervigreindar. Algengast er að fyrirtæki nefni skort á viðeigandi sérþekkingu en einnig eru nefnd álitamál svo sem aðlögun að núverandi kerfum, búnaði og siðferðileg og lagaleg álitaefni. Smærri fyrirtæki hafa frekar áhyggjur en stærri. Tengdar fréttir Gervigreind Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meinað að keppa í Bandaríkjunum Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Auðvelda stuðning við starfsfólk úr ofbeldissamböndum Lagfærðu stórvirki Errós í París „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Missti stjórn á bílnum vegna hálku Mest lesið Í gær Í vikunni Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu Þriðjungur enn með Windows 10 Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu Þriðjungur enn með Windows 10 Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Þriðjungur enn með Windows 10 Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun Nýjast á mbl.is » Meinað að keppa í Bandaríkjunum Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Auðvelda stuðning við starfsfólk úr ofbeldissamböndum Lagfærðu stórvirki Errós í París „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri muni fara á örorku „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Björgunarflug fyrir á fimmta tug Íslendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu Þriðjungur enn með Windows 10 Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu Þriðjungur enn með Windows 10 Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Þriðjungur enn með Windows 10 Kynntu lyklaborð með innbyggðri tölvu HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

Share this article