Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Ný kynslóð verkbókhalds einfaldar rekstur iðnaðarmanna

  • What: New software simplifies construction and property management
  • Impact: Aids small and medium-sized businesses
Read Full Article →

Á undanförnum árum hefur fjöldi nýrra tæknilausna rutt sér til rúms í flestum atvinnugreinum. Þrátt fyrir að þetta eigi einnig við umbyggingariðnaðinn eru enn fjölmörg fyrirtæki sem styðjast við handvirka og óskilvirka ferla þegar kemur að utanumhaldi verkefna. Þetta á meðal annars við um tímaskráningar starfsmanna, utanumhald og eftirlit með útlögðum kostnaði og launakeyrslur svo fátt eitt sé nefnt. Hugbúnaðarfyrirtækið Kozmoz ehf. hefur undanfarin misseri einbeitt sér að því að nútímavæða rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja íbyggingariðnaði með nýstárlegri hugbúnaðarlausn. „Grunnhugmyndin að baki lausninni sem við höfum þróað er einföld: að taka þennan þunga og oft tímafreka hluta rekstursins og gera hann sjálfvirkan,“ segir Borgar Erlendsson, stofnandi fyrirtækisins. Lausnin er sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður og daglegan veruleika rekstraraðila fyrirtækja í nýbyggingum og viðhaldi fasteigna. Tengir tímaskráningar og útlagðan kostnað við bókhaldskerfi Borgar segir að kjarninn í kerfinu sé einfalt verkbókhald sem tengir saman tímaskráningar og útlagðan kostnað, s.s. efniskaup, akstur, verkfæragjald o.fl., við bókhaldskerfi fyrirtækja. „Tímaskráning getur til að mynda verið sjálfvirk; þegar iðnaðarmaður mætir á verkstað hefst skráning og henni lýkur þegar hann yfirgefur staðinn. Þannig er dregið úr hættu á að tímar gleymist eða safnist upp óskráðir þar til í lok mánaðar. Kostnaðarskráning byggir á sömu hugsun. Ef verslað er í byggingavöruverslun og kennitala fyrirtækis gefin upp berst rafrænn reikningur sjálfkrafa inn í kerfið. Sé verknúmer jafnframt skráð í skýringu tengist reikningurinn sjálfvirkt við viðkomandi verkefni.” Hann bætir við að við uppgjör eða verklok sé hægt að flytja allan skráðan kostnað verkefna beint yfir í bókhaldskerfi á borð við Payday og DK. „Þar með einfaldast reikningagerð til muna og dregið er úr villuhættu. Jafnframt er hægt að flytja tímaskráningar starfsmanna beint inn í bókhaldskerfi og skapa þannig traustan grunn að launakeyrslu um hver mánaðamót. Með þessu verður ferlið bæði skilvirkara og einfaldara fyrir stjórnendur.” Nýtist jafnt smærri fyrirtækjum sem stærri verktökum Lausnin nýtist jafnt smærri fyrirtækjum sem stærri verktökum, þar sem stjórnendur geta fylgst með framvindu verkefna og kallað fram skýrslur eftir þörfum. Kerfið er aðgengilegt með appi fyrir Android og iPhone-síma. Þar að auki hafa stjórnendur aðgang að vef sem gefur enn betri yfirsýn yfir stöðu verkefna. Verkefnið hefur notið stuðnings úr ýmsum áttum en Kozmoz hefur meðal annars hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði og Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka, sem hefur gert fyrirtækinu kleift að hraða þróun og efla vöruna enn frekar. Þá hefur fyrirtækið átt í góðu samstarfi við Samtök iðnaðarins, sem hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga og veitt faglega ráðgjöf á ýmsum sviðum. „Byggingariðnaðurinn samanstendur af þúsundum fyrirtækja hér á landi en sérsniðnar tæknilausnir fyrir íslenskar aðstæður hafa verið af skornum skammti. Með einfaldri og nútímalegri lausn viljum við stuðla að skilvirkari og faglegri rekstri fyrirtækja í mannvirkjagerð,” segir Borgar að lokum.

Share this article