- What: New insurance policy supports employees in abusive relationships
- Impact: Employers can provide support for employees in need
Innlent | mbl | 10.3.2026 | 11:07 Auðvelda stuðning við starfsfólk úr ofbeldissamböndum Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar og Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkahlíðar. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir Setja bókamerki Stuðningsleyfi er ný vernd sem bætist við slysatryggingar fyrirtækja. Með stuðningsleyfi geta atvinnurekendur fengið bætur fyrir launað leyfi starfsmanns í allt að tvær vikur þannig að starfsmaður geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap. Vörður tryggingar kynnir þessa nýju tryggingavernd sem ætlað er að auðvelda fyrirtækjum að styðja enn betur við starfsfólk sitt sem er að vinna sig úr ofbeldissambandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði tryggingum, þar sem segir að stuðningsleyfi sé framhald af vegferð Varðar að skoða betur tryggingavernd út frá ólíkum hópum og finna nýjar leiðir til þess að stíga inn þar sem það raunverulega skiptir máli. Frétt af mbl.is Ný tryggingarvernd fyrir þolendur ofbeldis Geta veigrað sér við að breyta aðstæðum Í upphafi síðasta árs var neyðarvernd fyrir þolendur ofbeldis í nánu sambandi bætt við í hefðbundnar heimilistryggingar í samráði við Kvennaathvarfið. Þá var meðgöngu- og foreldravernd bætt við hefðbundnar sjúkdómatryggingar fyrir verðandi mæður og foreldra á síðasta ári. Í tilkynningunni segir að vinnustaðurinn geti stundum verið eina reglubundna snerting þolanda við samfélagið fyrir utan heimilið. „Rannsóknir sýna að þolendur ofbeldis í nánu sambandi geta veigrað sér við að breyta aðstæðum, meðal annars vegna ótta við að þurfa að vera fjarverandi frá vinnu og að stefna fjárhagslegu öryggi sínu í hættu.“ Samhliða mun Vörður í samstarfi við Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, bjóða upp á fræðslu fyrir stjórnendur, starfsfólk og almenning um hvernig megi þekkja merkin sem gætu birst á vinnustaðnum og hvernig sé best að bregðast við. Fræðsluefni verður er aðgengilegt á vef Bjarkarhlíðar og þá verður haldinn opinn fundur 17. mars ásamt því að boðið verður upp á námskeið fyrir fyrirtæki. Samfélagslegt mein – fræðsla skiptir öllu máli Haft er eftir Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur, forstjóra Varðar trygginga, í tilkynningunni að ofbeldi í nánum samböndum sé samfélagslegt mein sem varði alla. „Með aukinni fræðslu getum við frekar stutt við og aukið líkur á að fólki takist að breyta aðstæðum sínum. Með stuðningsleyfinu er atvinnurekendum auðveldað að styðja við starfsfólk sitt í þessum aðstæðum. Það er mikilvægt að þekkja merkin og vita hvernig á að bregðast við ef grunur leikur á að einhver sé þolandi ofbeldis í nánu sambandi.“ Þá er haft eftir Jennýju Kristínu Valberg, teymisstýru Bjarkahlíðar, að vinnustaðurinn sé oft eini snertiflötur þolenda fyrir utan heimilið. „Við hjá Bjarkahlíð höfum séð hversu miklu máli það getur skipt þegar stuðningur frá vinnuveitendanum er fyrir hendi. Vegna þeirrar einangrunar sem margir þolendur verða fyrir í ofbeldissambandi er samstarfsfólk á vinnustað oft eina fólkið sem þolandi getur átt í samskiptum við. Fræðsla á vinnustaðnum skiptir öllu máli og að þolendur viti að þessi stuðningur sé í boði. Ásamt því skiptir það fjárhagslega öryggi sem fylgir stöðugu starfi oft sköpum þegar þolandi tekur ákvörðun um að reyna að komast út úr þessum alvarlegu aðstæðum.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Auðvelda stuðning við starfsfólk úr ofbeldissamböndum Lagfærðu stórvirki Errós í París „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Mögnuð dramatík í stórleiknum Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri muni fara á örorku Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Fékk nótina í skrúfuna 21 þúsund atkvæði í súginn Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fleiri muni fara á örorku Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Auðvelda stuðning við starfsfólk úr ofbeldissamböndum Lagfærðu stórvirki Errós í París „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Mögnuð dramatík í stórleiknum Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Sést strax í næstu verðbólgumælingum Drumbarnir frá NATO Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Fékk nótina í skrúfuna 21 þúsund atkvæði í súginn Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fleiri muni fara á örorku Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason