Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim sem hafa stöðu sakbornings við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri um helgina. Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar, segir í samtali við fréttastofu að þeim hafi verið sleppt að loknum skýrslutökum á sunnudagskvöld. DV greindi frá því á sunnudag að þrír menn væru grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri og sagði brotin hafa verið framin á hóteli í miðbæ Akureyrar. Skarphéðinn sagði við fréttastofu í gær að lögregla væri með málið til rannsóknar og að fleiri en einn hafi stöðu sakbornings vegna rannsóknarinnar. Hann vildi ekki segja hversu margir hefðu stöðu sakbornings í morgun. Málið sé áfram til rannsóknar hjá lögreglu. Skarphéðinn vildi að öðru leyti ekki tjá sig, ekki sé venja hjá lögregluembættinu að tjá sig um kynferðisbrot.