Innlent | mbl | 11.3.2026 | 20:00 Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Helgi Magnús Gunnarsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi vararíkissaksóknari, ræðir við mbl.is vegna rannsóknar lögreglunnar á Akureyri. Samsett mynd/mbl.is/Þorgeir/Hallur Már Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Almennt hefur gæsluvarðhaldi ekki verið beitt á grundvelli almannahagsmuna í kynferðisbrotamálum. Þetta segir Helgi Magnús Gunnarsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi vararíkissaksóknari, í samtali við mbl.is. Sagt var frá því á mbl.is í gær að lögreglan á Norðurlandi eystra hefði ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim sem hafa stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli sem hefur verið til rannsóknar á Akureyri síðan um helgina. Þá sagði Skarphéðinn Aðalsteinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, að hvorki rannsóknarhagsmunir né almennir hagsmunir hefðu verið taldir fyrir því að fara fram á gæsluvarðhald. Mennirnir eiga að hafa brotið gegn konu á þrítugsaldri á hóteli á Akureyri aðfaranótt sunnudags og konan fengið aðhlynningu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og borið talsverða áverka eftir árásina. Brotið á að hafa verið einstaklega hrottalegt og konunni verið misþyrmt svo klukkustundum skipti. Mennirnir eru taldir hafa tekið myndband af ofbeldinu sem á að hafa farið í einhverja dreifingu. Á samfélagsmiðlum var Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleini, sagður einn sakborninganna og hafa fjölmiðlar greint frá því. Frétt af mbl.is Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Afbrot sem getur varðað 10 ára fangelsi Fjallað er um gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna í 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Þar segir að úrskurða megi sakborning í gæsluvarðhald ef sterkur grunur leiki á að hann hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi og að brotið sé þess eðlis að varðhald megi ætla nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Helgi Magnús segir það almennt talið svo að brot þurfi að vera svo alvarlegt að það að menn gangi lausir verði til þess fallið að skapa óánægju eða úlfúð í samfélaginu. Þannig hafi Mannréttindadómstóll Evrópu túlkað ákvæðið. Rannsóknarhagsmunir geti réttlætt einhverja daga Hann segir þó oft mjög mikilvægt að taka skýrslur af sakborningum, ef þeir eru fleiri en einn, og ná utan um mál áður en þeim sé gefið færi á að bera saman bækur sínar. Það séu rannsóknarhagsmunir og séu þeir til staðar geti þeir réttlætt gæsluvarðhald í einhverja daga. Fjallað er um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í a-lið 1. mgr. 95. gr. laganna. Þar segir að ef ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka eða vitni megi úrskurða hann í gæsluvarðhald. Helgi segir eðlilegt að beita ákvæðinu með þeim hætti á meðan verið er að ná utan um rannsóknina og ef gögnin gefa það til kynna. Frétt af mbl.is Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Síbrotagæsla mjög sjaldan í alvarlegum brotum Hvað með einstaklinga sem brjóta aftur og aftur af sér? Má úrskurða þá í gæsluvarðhald? „Það er sérstök síbrotagæsla og c-liður málsgreinarinnar, aðrar aðstæður og það er annað mál. Það eru sennilega mjög sjaldan forsendur til að álykta eitthvað svoleiðis, nema viðkomandi hafi sýnt það af sér áður. Það þurfa að vera einhver sérstök rök,“ segir Helgi. Hann segir síbrotagæslu yfirleitt beitt ef menn eru í síbrotum eins og að brjótast inn og stela og eitthvað í þeim dúr eða í sérstöku ástandi. „Þetta gerist mjög sjaldan í alvarlegum brotum. Þau eru yfirleitt einstök og ekkert sem bendir til þess að menn ætli að fremja slík brot aftur en ef einhver rök eru fyrir því væri hægt að beita slíku úrræði.“ Aðspurður segist Helgi ekki hafa trú á því að lögreglan veigri sér við að óska eftir gæsluvarðhaldi yfir sakborningum vegna stöðu fangelsismála, en lengi hefur verið ritað og rætt um plássleysi í íslenskum fangelsum. „Ég hef aldrei vitað til þess að lögreglan hugsi um það og aldrei hefur neitt samband verið þar á milli að mínu viti. Það er bara eitthvað sem fangelsisyfirvöld verða að leysa. Ég veit ekki til þess að það sé orðið þannig að það sé eitthvað samstarf þar á milli um að minnka álag. Ég trúi því varla og það væri ekki í lagi. Þetta verður að ráðast af atvikum og það sama að ganga yfir alla.“ Frétt af mbl.is Hafdís opnar sig um ofbeldissambandið við Kleina Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Rigas Zelli, staðan er 59:62 Real Madrid - Man. City, staðan er 1:0 Kallaði Melaniu kvikmyndastjörnu Interpol og FBI með í ráðum í Noregi Elskar frægasta hótelið í London Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Virða ber eignarrétt landeigenda Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Rigas Zelli, staðan er 59:62 Real Madrid - Man. City, staðan er 1:0 Kallaði Melaniu kvikmyndastjörnu Interpol og FBI með í ráðum í Noregi Elskar frægasta hótelið í London Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Virða ber eignarrétt landeigenda Ferðamenn lentu á kafi í vatni Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason