Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fundar með úkraínskum lækni sem vinnur við þjónustustörf

Read Full Article →

Forstjóri Landspítala hefur boðað lækni frá Úkraínu, sem fjallað var um í fréttum RÚV í síðustu viku, til fundar við sig. Rætt var við sérfræðilækninn Dariu Peremot í sjónvarpsfréttum, en Daria hefur ekki getað fengið vinnu í samræmi við menntun á Íslandi og vinnur við þjónustustörf. Hún tók stöðupróf við Háskóla Íslands í fyrra en Daria starfaði sem háls-, nef- og eyrnalæknir í heimalandinu. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, segir í samtali við fréttastofu að eftir að hann sá fréttina um Dariu hafi ýmsar spurningar vaknað um hvernig móttöku erlends heilbrigðisstarfsfólks er háttað hér landi, sér í lagi lækna. Hann telur þörf á að bæta ferlið þannig að fólk fái viðeigandi upplýsingar og aðstoð til að fá starf í íslensku heilbrigðiskerfi. Því hafi hann viljað funda með Dariu og heyra hennar upplifun á kerfinu. Hann bendir á að til að fá læknisleyfi á Íslandi þurfi erlendir læknar ekki bara að fá menntun sína og störf metin heldur þurfi þeir eftir það að ljúka sex mánaða starfsnámi, undir handleiðslu, á heilbrigðisstofnun. Runólfur segir slæmt ef dýrmæt reynsla og menntun fólks fari forgörðum. Því sé mikilvægt að kerfið taki vel á móti fólki og leiði það gegnum ferlið.

Share this article