- What: EU signs defense agreements with Iceland, Austria, and Ghana
- Impact: Strengthens international defense cooperation and security partnerships
Evrópusambandið skrifar undir varnarsamstarfssamninga við Ástralíu, Ísland og Gana á allra næstu dögum. Þetta hefur fréttamiðillinn euobserver eftir Kaju Kallas, utanríkismálaráðherra ESB. Kallas sagði á árlegum fundi sendiherra ESB í gær að ríkjum færi fjölgandi sem sæktust eftir auknu og fjölbreyttu ríkjasamstarfi í skugga aukinnar áhættu í alþjóðamálum. ESB hefur þegar skrifað undir varnarsamninga við Bretland, Kanada og Japan, og varnarsamstarf við Indland hefur verið nefnt til viðbótar við viðskiptasamning. Kaja segir að samningur við Ástralíu verði undirritaður í þessari viku og samningar við Ísland og Gana á næstu dögum. Varnarsamstarfssamningur við Gana verður fyrsti slíki samningur Evrópusambandsins við Afríkuríki.