Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umboðsmaður gerir ekki athugasemdir við eftirliti MAST með blóðmerahaldi

Read Full Article →

Umboðsmaður Alþingis telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við starfshætti MAST og fyrirkomulag eftirlits stofnunarinnar með blóðmerahaldi. Í bréfi umboðsmanns segir að embættið hafi tekið málið til athugunar að eigin frumkvæði eftir að fjallað var um meðferð á blóðmerum í fjölmiðlum. Til athugunar voru viðbrögð Matvælastofnunar við upplýsingum um slæma meðferð á blóðmerum. Í bréfi umboðsmanns segir að embættið hafi sent Matvælastofnun bréf þann 15. apríl og var stofnunin þar beðin að upplýsa um fyrirkomulag eftirlits með blóðmerahaldi, umfang þess og skipulag, samanborið við annað eftirlit stofnunarinnar. Þá óskaði umboðsmaður einnig eftir því að gerð yrði grein fyrir því mati sem fram færi þegar ákvörðun væri tekin um hvort beita ætti viðurlögum eða ekki. Að endingu var óskað skýringa og upplýsinga um hvenær Matvælastofnun kærði háttsemi til lögreglu og um tilgreind atriði í því sambandi. Í svari Matvælastofnunar til umboðsmanns sem barst 13. maí voru að sögn umboðsmanns veittar ítarlegar upplýsingar um eftirlit með blóðmerahaldi og eftirlit með búfénaði almennt. Varðandi viðurlög sem stofnunin beitir segir í svari Matvælastofnunar að kallað sé saman teymi þriggja eða eftir atvikum fleiri sérfræðinga til að meta málið. Teymið sé samsett af dýralæknum og lögfræðingum og meti hvert mál út frá reiknilíkani sem taki tillit til alvarleika, ítrekunar, ásetnings, samstarfsvilja hins brotlega og þess hvort brot hafi staðið lengi yfir. Þetta teymi taki svo ákvörðun um hvort gefin verði út kæra. Í apríl á síðasta ári fjallaði fréttastofa um upptökur dýraverndarsamtaka sem sýna hryssur barðar þar sem þær voru reknar inn í blóðtökubása. Upptökur dýraverndunarsamtaka sem birtar voru urðu meðal annars til þess að Eftirlitsstofnun EFTA komst að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði brotið gegn reglum EES um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Matvælastofnun komst að þeirri niðurstöðu að frávik hafi orðið þegar starfsmaður í blóðtöku hryssa veittist ítrekað að dýrunum. Sérgreinadýralæknir hjá MAST sagði í samtali við fréttastofu að eitt atvik, sem tekið var til skoðunar af stofnuninni, hefði verið metið innan „ásættanlegra marka“. Dýraverndunarsamtök voru gagnrýnin á meint aðgerðaleysi MAST í málinu. Umboðsmaður taldi eftir að hafa fengið útskýringar Matvælastofnunar að ekki væri tilefni til þess að gera athugasemdir við starfshætti MAST. Þá taldi umboðsmaður einnig að hún væri almennt ekki í aðstöðu til að taka mat sérfræðinga Matvælastofnunar til endurskoðunar. Því ákvað umboðsmaður að ljúka athugun sinni án athugasemda.

Share this article