Fagráð Matvælastofnunar um velferð dýra tók til umfjöllunar umsókn Ísteka um blóðmerahald, sem fellur undir reglugerð um velferð dýra sem notuð eru í vísindaskyni, á fundi 13. febrúar. Ráðið komst ekki að samróma niðurstöðu og kallað hefur verið eftir frekari gögnum og rökstuðningi frá fyrirtækinu. Fulltrúar Bændasamtakanna og Dýralæknafélags Íslands í ráðinu veittu umsókninni jákvæða umsögn, en fulltrúar Dýraverndarsambands Íslands og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands veittu henni neikvæða umsögn. Yfirdýralæknir MAST og formaður ráðsins taldi gögn með umsókninni ófullnægjandi, sem og rökstuðning fyrir vísindalegum og samfélagslegum ávinningi, og taldi sig ekki geta veitt umsókninni jákvæða umsögn. „Við höfum kallað eftir þeim gögnum, viðbrögðum fyrirtækisins. Við getum þá bætt við því sem upp á vantar og þá getum við þá vonandi klárað meðferð stofnunarinnar á umsókninni,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST. Hún segir að fyrirtækinu hafi verið veittur frestur en að hún telji að það sé einnig hagur fyrirtækisins að vinna málið hratt og örugglega. „En þetta er stórt og mikið mál og við þurfum að tryggja að við vinnum samkvæmt ýtrustu kröfum stjórnsýslulaga og við viljum vanda vel til verka í þessu máli sem og öðrum.“ Umsókn hafnað í fyrra og ráðgjafar EFTA leitað Leyfi Ísteka fyrir blóðmerahaldi rann út síðasta haust. Fyrirtækið sótti um endurnýjað leyfi síðasta vor en umsókninni var hafnað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði reglugerðar um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Blóðtaka úr fylfullum hryssum var færð undir reglugerðina 2023 í kjölfar áminningar frá Eftirlitsstofnun EFTA-dómstólsins. Ísteka kærði íslenska ríkið vegna ákvörðunarinnar og Héraðsdómur Suðurlands óskaði eftir ráðgjöf EFTA-dómstólsins í málinu. Málflutningur fór fram fyrir EFTA-dómstólnum á miðvikudag.