Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögreglan á Vesturlandi leitar að Heklu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regl­an á Vest­ur­landi leitar að Heklu Ásrún Aldís Hreinsdóttir Lögreglan á Vesturlandi leitar að Heklu Agnarsdóttur, 14 ára. Síðast sást til Heklu í dag 10. mars á Akranesi klukkan 12:20. Hafi fólk upplýsingar um ferðir Heklu er það beðið um að hafa samband við lögregluna, 112. Lögreglan á Vesturlandi Lögreglan á Vesturlandi Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Er­lend­ir læknar hissa á að þurfa að kunna ís­lensku til að fá að starfa hér á landi Yfirlæknir sérnámsgrunnslækna á Landspítala segir skort á íslenskukunnáttu það sem helst verði til þess að erlendir læknar sem hingað komi fái ekki starf. Mörgum komi á óvart að það þurfi að læra íslensku til að starfa innan heilbrigðiskerfisins. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Spánn Ótt­að­ist um líf sitt eftir að hafa verið rænd á Tene en fram­lengdi samt ferð­ina Íslensk kona sem var rænd á Tenerife um helgina segist hafa óttast um líf sitt. Hún hafi ákveðið að kæra málið ekki til lögreglunnar og segist hafa framlengt ferðina. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Enginn af­slátt­ur gefinn segi þjóðin já við að­ild­ar­við­ræð­um Forsætisráðherra segist hafa komið þeim skilaboðum áleiðis til forystumanna Evrópusambandsins að aðild Íslands yrði ekki á hvaða forsendum sem er, segi þjóðin já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. „Ég mun selja landið fokdýrt.“ Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Um­boðs­mað­ur gerir ekki at­huga­semd­ir við eft­ir­lit MAST með blóðmera­haldi Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun á fyrirkomulagi eftirlits MAST með blóðmerahaldi. Hann gerir engar athugasemdir við starfshætti stofnunarinnar og telur sig ekki í aðstöðu til að gera athugasemdir við mat sérfræðinga. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Full­orð­ins-LEGO lætur fólki líða aftur eins og börnum Leikfangarisinn LEGO skilaði methagnaði á síðasta ári: 352 milljörðum íslenskra króna. Möguleg ástæða er auknar vinsældir fullorðins-LEGO, sem rjúka út úr verslunum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Íhalds­menn á Evr­ópu­þing­inu myndu fagna aðild Ís­lands að ESB ECR-flokkahópurinn á Evrópuþinginu sem Miðflokkurinn er í tengslum við, myndi fagna aðild Íslands að Evrópusambandinu, segir þingmaður ECR sem leiðir utanríkismálastefnu flokkahópsins og er málsvari hans í þeim efnum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Kast­að­ist í kekki milli Dags og Sig­mund­ar Davíðs vegna MAGA Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið tóku óvæntan snúning þegar þingmaður Samfylkingarinnar skoraði á Miðflokkinn að gera grein fyrir tengslum sínum við bandarísku MAGA-hreyfinguna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Heiða Krist­ín ráð­legg­ur ut­an­rík­is­ráð­herra fram að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Þetta staðfestir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við fréttastofu. Vísir greindi fyrst frá. Heiða Kristín var aðstoðarmaður Jóns Gnarrs í borgarstjóratíð hans, og varaþingmaður Bjartrar framtíðar 2014 til 2015. Heiða Kristín Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Tökur hafnar á „Hólma­vík“ Um 60 manna tökulið verður að störfum á Hólmavík næsta mánuðinn, að taka upp kvikmynd byggða á hugmyndinni um að Baskar hafi verið réttdræpir á Vestfjörðum. Meðal leikara verður fótboltakempa frá tíunda áratugnum sem hefur snúið sér að leikstörfum. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Krist­rún Ríkey inn í lands­liðs­hóp­inn Ein breyting hefur verið gerð á landsliðshópi Íslands í körfubolta fyrir leik gegn Serbíu á morgun. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir kemur inn í stað Ástu Júlíu Grímsdóttur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál 30 millj­óna króna verk­taka­greiðsl­ur til sam­lags­fé­lags eig­in­manns heil­brigð­is­ráð­herra Miklar deilur hafa geisað á Sjúkrahúsinu á Akureyri út af verktakasamningum við lækna og uppsögn á þeim. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur dregist inn í umræðuna persónulega vegna þess að eiginmaður hennar gerði slíkan samning við sjúkrahúsið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Kona hand­tek­in grunuð um að hafa reynt að drepa Rihönnu Kona skaut tíu skotum að heimili tónlistarkonunnar Rihönnu í Beverly Hills þar sem hún var ásamt A$AP Rocky og börnum þeirra. Engan sakaði en ein kúla lenti á húsbíl í innkeyrslu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Búist við fjöl­menni við útför Davíðs Odds­son­ar Útför Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. mars. Athöfnin er opin almenningi á meðan húsrúm leyfir en bein sjónvarpsútsending verður frá útförinni á RÚV. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fundar með verk­lýðs­for­yst­unni á fimmtu­dag­inn Fjármálaráðherra hefur fundað með aðilum vinnumarkaðarins undanfarið og segir markmiðið að fara í samstilltar aðgerðir til að sporna við verðbólgu. Verkalýðsforystan á fund með þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar á fimmtudaginn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Þor­gerð­ur á leið til Wash­ing­ton að funda með ráða­mönn­um Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer til Washington DC í Bandaríkjunum í dag til að funda um tvíhliða samstarf ríkjanna og stöðu alþjóðamála. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Þorgerður komi til með að funda með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna í utanríkisráðuneytinu, Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra í varnarmálaráðuneytinu, og Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptafulltrúa Bandaríkjanna. Þá mun hún hitta þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið ESB skrif­ar undir varn­ar­samn­inga við Ísland, Ástr­al­íu og Gana Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að varnarsamningar við Ástralíu, Ísland og Gana verði undirritaðir á allra næstu dögum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Óhugn­an­leg­ar lýs­ing­ar á Edi­tion-málinu í far­banns­úr­skurði Franska konan, sem er grunuð um að hafa stungið bæði eiginmann sinn og dóttur á Edition-hótelinu síðasta sumar, lýsti sjálfri sér sem skrímsli í fyrstu skýrslutöku sem lögregla tók af henni. Hún sagði manninn sinn hafa ákveðið bæði stund og stað. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélag Mik­il­vægt fyrir um­ræðu­hefð­ina að fólk leyfi sér að vera ósam­mála Hætt er við skautun í kringum tvíkosta atkvæðagreiðslur eins og þeirri sem til stendur að halda í haust um áframhaldandi aðildarviðræður að ESB, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Mikilvægt sé að fólk með ólíkar skoðanir geti ræðst við. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rekja stór­bruna til hleðslu­tæk­is fyrir lyft­ara Lögreglan telur líklegast að eldurinn sem kviknaði í vöruskemmu í Gufunesi í janúar hafi kviknað út frá hleðslutæki fyrir lyftara. Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Snorri hefur samúð með ráð­herra Ólíklegt er að það takist að klára umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gera fjarveru forsætisráðherra ítrekað að umræðunefni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hækk­andi ol­íu­verð geti kynt undir verð­bólgu Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að hátt olíuverð á heimsvísu gæti aukið verðbólgu hér á landi. Mögulega komi það til með að hafa áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hlaut sex mánaða dóm fyrir smygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi erlendan karlmann í dag til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var staðinn að smyglinu þegar hann kom til Íslands með flugi frá Portúgal. Hann var með 386 grömm af kókaíni á sér. Maðurinn játaði sök þegar ákæra gegn honum var þingfest. Hann sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin hingað til lands gegn greiðslu. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 6. febrúar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Nýtt Form­úlu 1 tíma­bil hafið Um helgina hófst nýtt tímabil í Formúlu 1 kappakstrinum í Ástralíu. Miklar breytingar hafa verið gerðar á bílum og nýtt lið mætt til leiks. Bragi Þórðarson og Pétur Jóhann Sigfússon spáðu í spilin á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hvers vegna eru bestu liðin svona miklu betri en næst­bestu liðin? Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hóf leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í síðustu viku. Andstæðingarnir voru heimsmeistararnir og Evrópumeistararnir. Adda Baldursdóttir og Albert Ingason rýndu í leikina og stöðuna á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Arna datt í loka­beygj­unni — „Ég var að reyna að vera svo­lít­ið aggr­essív“ Arna Sigríður Albertsdóttir datt í lokabeygjunni í sprettgöngunni sem hún keppti í á Vetrarólympíumótinu í morgun. Það hafði mikil áhrif á tímann hennar en hún varð í 19. sæti af 19 keppendum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fundar með úkra­ínsk­um lækni sem vinnur við þjón­ustu­störf Forstjóri Landspítala segir að fréttir af úkraínskum lækni, sem fær ekki vinnu á Íslandi í samræmi við menntun, bendi til að nauðsynlegt sé að bæta ferlið við móttöku erlends heilbrigðisstarfsfólks. Hann hefur boðað lækninn á fund. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Nýir skatt­ar á orku­mann­virki gætu lent á al­menn­um not­end­um Nýir fasteignaskattar á orkumannvirki gætu hækkað raforkuverð að mati nokkurra orkufyrirtækja. Stóriðjan er varin með langtímasamningum og í fyrstu gæti hækkunin lent á almenningi og smærri fyrirtækjum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hluta­bréfa­verð í Ic­elandair rýkur upp Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðmæti hlutabréfa í Icelandair hefur hækkað um tæp fim

Share this article