Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eldflaugaárásum Írana fækkað um 95%

Read Full Article →

Fjöldi langdrægra eldflauga sem Íran hefur skotið hefur hrunið síðan á fyrsta degi átakanna, samkvæmt gögnum frá Washington-stofnuninni Jewish Institute for National Security of America, eða Jinsa. Wall Street greinir frá þessu fyrir stundu. Þann 28. febrúar, þegar átökin hófust, skaut Íslamska lýðveldið 428 langdrægum eldflaugum í átt að Ísrael og nágrannaríkjum þess við Persaflóa, að því er Jinsa segir. Í dag hafa stjórnvöld í Teheran skotið 24 langdrægum eldflaugum, sem fara út fyrir lofthjúp jarðar á flugi sínu, sem er 95% samdráttur miðað við fyrsta dag stríðsins. Fjöldi dróna sem Íran hefur sent á loft á skotmörk víðs vegar um svæðið hefur fallið í 48 það sem af er þriðjudegi, samanborið við 345 á fyrsta degi átakanna, að því er fram kemur. Jinsa safnar gögnum sínum um Persaflóasvæðið úr opinberum yfirlýsingum stjórnvalda og fréttaflutningi fjölmiðla. Gögn stofnunarinnar um Ísrael byggjast á eigin talningu á tilkynntum skotum og upplýsingum sem ísraelskir herforingjar hafa deilt með henni. Undanfarna sjö daga hefur fjöldi eldflauga sem Íran hefur skotið að meðaltali verið 39 á dag, að því er Jinsa segir. Á sama tímabili hefur fjöldi dróna sem sendir eru á loft að meðaltali verið 143 á dag. Íran hefur hingað til í átökunum skotið meira en 1.000 eldflaugum og 2.200 drónum, samkvæmt Jinsa. Stjörnvöld í Teheran hafa litið á eldflaugaáætlun sína sem bestu von sína til að fæla frá árásir eða svara loftárásum með gagnárásum. Íran hefur enn getu til að senda á loft banvæna einnota árásardróna, sem kallast Shahed, sem það hefur notað gegn orkuinnviðum, ferðamannastöðum og hernaðarmannvirkjum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Barein og Kúveit, meðal annars í Persaflóaríkjunum. Bandarískar og ísraelskar árásir hafa valdið miklu tjóni á neðanjarðarstöðvum Írans og skotpöllum, samkvæmt gervihnattamyndum. „Árásir Ísraels og Bandaríkjanna hafa dregið mjög úr getu þeirra til að nota skotpalla á meðan stríðinu stendur,“ sagði Ari Cicurel, aðstoðarforstjóri utanríkismála hjá Jinsa. „Þeir þurfa að fara sparlega með þær eldflaugar sem þeir eiga eftir eins lengi og þeir geta.“

Share this article