Ísland gæti lokið aðildarviðræðum sínum við Evrópusambandið á einu og hálfu ári og orðið næsta aðildarríki Evrópusambandsins ef þjóðin greiðir atkvæði með því að halda viðræðum áfram. Þetta hefur Politico eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í dag. Í viðtalinu er haft eftir Þorgerði Katrínu að viðræðurnar verði ekki svo flóknar fyrir Ísland þar sem landið sé þegar hluti af Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta yrði því frekar fljótlegt ferli ef landsmenn greiddu atkvæði með aðildarviðræðum. Þorgerður Katrín sagði á blaðamannafundi þegar þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæði var kynnt að viðræður þyrftu ekki að taka mjög langan tíma. Svartfjallaland hefur verið það land sem hefur þótt líklegast til að verða næsta nýja aðildarríki Evrópusambandsins. Ísland svaraði játandi þegar Politico spurði hvort Ísland gæti farið fram fyrir það land í röðinni, stærsta málið yrði þó fiskveiðimál. Politico hafði eftir ónafngreindum embættismanni hjá Evrópusambandinu í síðasta mánuði að hægt yrði að klára aðildarviðræður á einu ári. Umræðum á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður var haldið áfram í gærkvöld og stóð þingfundur fram undir miðnætti. Nú taka við nefndadagar og verður þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar því næst rædd á mánudag.