Útlit er fyrir að hríðarveður geisi á norðvestanverðu landinu allt frá því snemma í fyrramálið þar til á föstudagsmorgun. Veðurstofan gaf í dag út gular viðvaranir vegna norðanhríðar með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Hætt er við að akstursskilyrði versni, einkum á fjallvegum. Viðvaranirnar taka gildi í fyrramálið, fyrst á Vestfjörðum klukkan sex, því næst á Norðurlandi vestra klukkan sjö og loks við Breiðafjörð klukkan átta. Veðrið ætti að ganga niður aðfaranótt föstudags við Breiðafjörð en ekki fyrr en á föstudagsmorgun á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á þremur spásvæðum.Veðurstofan