Útlit er fyrir hríðarveður á norðvestanverðu landinu frá því snemma í fyrramálið þar til á föstudag. Veðurstofan gaf í dag út gular viðvaranir vegna norðanhríðar með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Hætt er við að akstursskilyrði versni, einkum á fjallvegum. Viðvaranirnar taka gildi í fyrramálið: á Vestfjörðum klukkan sex, því næst á Norðurlandi vestra klukkan sjö og loks við Breiðafjörð klukkan átta. Veðrið ætti að ganga niður aðfaranótt föstudags við Breiðafjörð en ekki fyrr en á föstudagsmorgun á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Blint getur orðið og erfið færð norðan til í dag. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á þremur spásvæðum.Veðurstofan