Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum lokið

Read Full Article →

Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum í Reykjavík í apríl í fyrra er lokið. Annað málið er komið á borð héraðssaksóknara. Hitt verður sent á ákærusvið í vikunni. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild. Hún segist að öðru leyti ekki tjá sig um málin. Tvær konur kærðu þrjá menn fyrir hópnauðgun í apríl í fyrra. Brotin áttu sér stað með tveggja vikna millibili og sömu mennirnir virtust hafa verið að verki í bæði skiptin. Sömu menn að verki í sömu íbúð í Vesturbæ Konurnar tvær þekktust ekki. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður kvennanna, sagði í samtali við fréttastofu í fyrra að útlit væri fyrir að brotin væru þaulskipulögð. Þá sagði hann að grunur léki á að konunum hafi verið byrluð ólyfjan á sama skemmtistaðnum í miðborg Reykjavíkur. Þá hafi verið farið með þær í sömu íbúðina í Vesturbæ þar sem brotið hafi verið á þeim klukkustundum saman. Hann gagnrýndi á sínum tíma að mennirnir hafi ekki setið í gæsluvarðhaldi og sagði konurnar vilja vekja athygli á málinu í fjölmiðlum til þess að vara aðrar konur við mönnunum, sem gengu lausir.

Share this article