Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Til rannsóknar hvort hrottaleg árás í byrjun árs hafi verið tilraun til manndráps

Read Full Article →

Lögreglan hefur til rannsóknar hvort hrottaleg árás í byrjun árs, þar sem maður var sviptur frelsi sínu og honum misþyrmt í bíl áður en hann var skilinn eftir utandyra, hafi verið tilraun til manndráps. Þetta staðfestir Eiríkur Valberg lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fréttastofa greindi frá um miðjan febrúar var maðurinn, sem varð fyrir árásinni, sóttur á heimili sitt og beittur hrottalegu ofbeldi þar til hann var skilinn eftir utandyra, í miklum kulda, með alvarlega áverka við Bíldshöfða í Reykjavík. Þar fannst hann og var fluttur þungt haldinn á Landspítala. Fjórir menn eru með réttarstöðu sakbornings en tveir þeirra, annar á þrítugsaldri og hinn á fimmtugsaldri, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Eldri manninum var sleppt eftir rúma viku í haldi en þeim yngri gert að sæta gæsluvarðhaldi í fjórar vikur, og svo gert að afplána eldri fangelsisdóm. Eiríkur segir lögreglu hafi nokkuð góða mynd af því sem gerðist en beðið sé eftir lykilgögnum svo að hægt sé að ljúka rannsókn. Maðurinn sem varð fyrir árásinni hefur verið útskrifaður af spítala.

Share this article