Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Með alla anga úti fyrir okkar fólk“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.3.2026 | 12:00 „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Þurý Björk Björgvinsdóttir. mbl.is/Karítas Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Borgaraþjónustan Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins sinnir vernd og aðstoð við Íslendinga við neyðaraðstæður erlendis gagnvart erlendum stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum, eins og lög um utanríkisþjónustu kveða á um (nr. 39/1971). Í þessu felst t.a.m. að þjónustan fer með mál er varða réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis. Tæplega 50 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis. Þar sem Ísland hefur sendiráð fer þjónusta oft í gegnum það, eða kjörræðismenn á svæðinu. Rúmlega fimm þúsund manns búa á svæðum þar sem engar sendiskrifstofur eru og þá þarf borgaraþjónustan að reiða sig á samvinnu við aðrar þjóðir. Borgaraþjónustan hefur tvö full stöðugildi en á álagstímum eins og núna fær þjónustan lánaða starfsmenn frá utanríkisráðuneytinu til aðstoðar meðan þörf krefur. Tengdar fréttir Íran 570 hafa verið drepnir í Líbanon Segja víðtækar árásir hafnar Íran hótar árásum á banka Íran velkomið að spila á HM segir Trump Flutningaskip rýmt á Hormússundi » Fleiri tengdar fréttir „Það er búið að vera gríðarlegt álag hjá okkur síðustu rúma viku, allt frá því að átökin brutust út í Mið-Austurlöndum,“ segir Þurý Björk Björgvinsdóttir, deildarstjóri borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. „Fyrstu klukkutímarnir og dagarnir hófust á því að reyna að fá sem skýrasta mynd af stöðu mála, bæði af því sem er að gerast og eins hvað við erum með marga Íslendinga sem eru á áhrifasvæðum átakanna og hvar þeir eru staddir,“ segir Þurý og bætir við að svæðið sé gríðarlega stórt og löndin mörg og svo sé það líka spurning hvort fólk óski eftir aðstoð til að koma sér frá svæðinu eða ekki. Björgunarflug Evrópuþjóða „Um leið og við fengum fregnir af því á miðvikudaginn í síðustu viku að Evrópuþjóðir væru farnar að skipuleggja björgunarflug fórum við strax í viðræður um að reyna að koma okkar ríkisborgurum með í þau flug, og það tókst vel og við fengum sæti í fyrstu þremur flugunum.“ Hún segir að daglega fylgist teymi borgaraþjónustunnar og almannavarna með þessu björgunarflugi og láti íslenska ríkisborgara á svæðinu vita og fá upplýsingar um hvort hægt væri að nýta sæti ef þau yrðu laus. En þá þurfi að kanna aftur hvort einhver sæti losni, því ríkisborgarar ríkjanna sem sjá um flugin gangi fyrir. Það þýðir að allt þarf að ganga hratt fyrir sig ef sæti losnar. „Okkar stærsta áskorun er hvað fólk er dreift og býr í mörgum ríkjum. Íslendingur í Sádi-Arabíu getur ekki farið í flug til Múskat því það er of langt í burtu. Þeir sem voru í Katar og Barein voru að fljúga frá Sádi-Arabíu og þeir sem voru í Dúbaí notuðu mikið flugvöllinn í Óman fyrstu dagana en svo opnaðist lofthelgin í Dúbaí aftur. En við þurfum að kortleggja þetta allt mjög vel.“ Borgaraþjónustan Núna vinna fjórir starfsmenn við að reyna að koma Íslendingum heim frá Mið-Austurlöndum. mbl.is/Karítas 219 Íslendingar skráðir Þurý segir að 219 Íslendingar hafi verið skráðir í gagnagrunn borgaraþjónustunnar á svæðinu. „Þetta eru bæði Íslendingar sem búa og starfa í þessum heimshluta og einnig ferðamenn. Síðan eru bæði flugvellirnir í Doha í Katar og Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum einnig miklir millilandaflugvellir. Fólk á leið til Asíu og jafnvel Afríku millilendir oft þarna á ferðalaginu, en auk þess er t.d. Dúbaí líka vinsæll ferðamannastaður.“ Þurý segir að nú séu 58 Íslendingar farnir frá svæðinu eða eigi bókað flug í dag eða næstu daga. „Það eru um 100 manns sem ætla ekki að yfirgefa svæðið og einnig hafa einhverjir komið sér sjálfir í burtu með almennu flugi.“ Hún segir að flestir sem ætli sér ekki að fara séu dreifðir en flestir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og einnig segir hún að enginn hafi farið frá Ísrael. „Við erum núna með mál sex einstaklinga enn þá í vinnslu og þar er meirihlutinn í Íran. Þar liggur netsamband meira og minna niðri og við erum í sambandi við aðstandendur hér heima og einnig við norrænu borgaraþjónustuna og fundum með þeim daglega. Við erum ekki með nein sendiráð í þessum heimshluta og mörg ríki þarna leyfa ekki kjörræðismenn, svo við erum ekki með neina fulltrúa á staðnum. Þess vegna erum við í svona miklu samstarfi við Norðurlandaríkin og erum með alla anga úti fyrir okkar fólk.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Borgaraþjónustan Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins sinnir vernd og aðstoð við Íslendinga við neyðaraðstæður erlendis gagnvart erlendum stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum, eins og lög um utanríkisþjónustu kveða á um (nr. 39/1971). Í þessu felst t.a.m. að þjónustan fer með mál er varða réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis. Tæplega 50 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis. Þar sem Ísland hefur sendiráð fer þjónusta oft í gegnum það, eða kjörræðismenn á svæðinu. Rúmlega fimm þúsund manns búa á svæðum þar sem engar sendiskrifstofur eru og þá þarf borgaraþjónustan að reiða sig á samvinnu við aðrar þjóðir. Borgaraþjónustan hefur tvö full stöðugildi en á álagstímum eins og núna fær þjónustan lánaða starfsmenn frá utanríkisráðuneytinu til aðstoðar meðan þörf krefur. Tengdar fréttir Íran 570 hafa verið drepnir í Líbanon Segja víðtækar árásir hafnar Íran hótar árásum á banka Íran velkomið að spila á HM segir Trump Flutningaskip rýmt á Hormússundi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spáir stýrivaxtahækkun Aflýsa öllum flugferðum til Dúbaí Viggó í eitt besta lið heims? Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Fjöldatakmarkanir á Schiphol dæmdar ógildar Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Segja víðtækar árásir hafnar Virða ber eignarrétt landeigenda Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Mest lesið Í gær Í vikunni Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Spáir stýrivaxtahækkun Aflýsa öllum flugferðum til Dúbaí Viggó í eitt besta lið heims? Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Fjöldatakmarkanir á Schiphol dæmdar ógildar Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Virða ber eignarrétt landeigenda Mest lesið Í gær Í vikunni Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason

Share this article