Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Borgaraþjónustan hefur flogið 41 Íslendingi frá áhrifasvæði átaka í Mið-Austurlöndum

Read Full Article →

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur verið í sambandi við 218 íslenska ríkisborgara í Mið-Austurlöndum síðan að átök brutust út í heimshlutanum. „41 íslendingur hefur komið sér í burtu með skipulögðu björgurnarflugi sem er fyrir tilstilli flugteymis okkar og Almannavarna, 68 aðilar hafa komið sér í burtu á eigin vegum og um 90 manns ætla sér ekki að fara neitt, fólk sem býr úti og hefur ekki hyggju að fara neitt.“ Segir Þurý Björk Björgvinsdóttir, deildarstjóri borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Langstærstur hluti þeirra sem hyggja ekki á heimferð er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Borgaraþjónustan hefur veitt leiðbeiningar og aðstoð eftir fremsta megni segir Þurý. Enn séu mál átta einstaklinga í vinnslu, flestir þeirra eru í Íran. Netsamband liggur að mestu niðri þar í landi og utanríkisþjónustan hefur verið í sambandi við aðstandendur á Íslandi sem hafa reynt að koma skilaboðum áleiðis. Til þessa hafa 120 íslenskir ríkisborgarar yfirgefið áhrifasvæði átakanna í Mið-Austurlöndum, en 90 Íslendingar hafa ekki í hyggju að yfirgefa svæðið. Langstærstur hópurinn er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þurý segir það hafa gengið vonum framar að koma fólki heim. „Fyrstu boð um björgunarflug bárust á miðvikudag og þá náðum við strax að koma okkar fólki um borð í þessi fyrstu flug. Það hefur gengið alveg ofboðslega síðan að fá sæti með samstarfsþjóðum fyrir íslenska ríkisborgara.“

Share this article