Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

175 haft samband við borgaraþjónustuna – 18 vilja sæti í björgunarflugi

Read Full Article →

18 Íslenskir ríkisborgarar hafa óskað eftir flugsætum í björgunarflugi á vegum stjórnvalda í Slóvakíu og Austurríki á morgun og á föstudag. „Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur þegar komið beiðnunum á framfæri við viðkomandi samstarfsríki,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við skriflegri fyrirspurn fréttastofu. Ekki fást upplýsingar um hversu margir í þessum 18 manna hópi geti vænst þess að fá sæti. Í gær upplýsti borgaraþjónustan íslenska ríkisborgara í Mið-Austurlöndum um að þeir gætu átt möguleika á sætum í þremur ferðum sem farnar verða á morgun og á föstudag: Amman í Jórdaníu til Bratislava í Slóvakíu þann 5. mars klukkan 15:00 að staðartíma. Amman til Bratislava í Slóvakíu þann 6. mars (brottfarartími óstaðfestur). Riyadh í Sádi Arabíu til Vínarborgar í Austurríki 5. mars klukkan 18:05 að staðartíma. Í pósti borgaraþjónustunnar frá í gær var fólk beðið um að hafa samband til að lýsa yfir áhuga á sætum. Takmarkaður fjöldi sæta yrði í boði fyrir ríkisborgara Evrópuríkja og því gildi lögmálið „fyrstur kemur fyrstur fær“. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa um 175 íslenskir ríkisborgarar í Mið-Austurlöndum haft samband við borgaraþjónustuna sem eigi í virku sambandi við hópinn. „Utanríkisráðuneytið hvetur alla Íslendinga á svæðinu sem vilja fá senda upplýsingapósta til að skrá sig hjá borgaraþjónustunni, hafi þeir ekki gert það nú þegar,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.

Share this article