- What: Icelanders in Middle East may be evacuated via special flights
- Impact: Icelandic citizens in conflict zones may have limited options for departure
Íslendingar sem eru strandaglópar í Miðausturlöndum vegna stríðsins þar gætu átt möguleika á að komast frá átakasvæðum með björgunarflugum á fimmtudag og föstudag. Um 140 Íslendingar eru á svæðinu. Borgaraþjónustan sendi í dag tölvupóst á fólk sem er á skrá til að benda á þrjú möguleg flug á vegum samstarfsríkja. Amman í Jórdaníu til Bratislava í Slóvakíu þann 5. mars klukkan 15:00 að staðartíma. Amman til Bratislava í Slóvakíu þann 6. mars (brottfarartími óstaðfestur). Riyadh í Sádi Arabíu til Vínarborgar í Austurríki 5. mars klukkan 18:05 að staðartíma. Í póstinum segir að hafa eigi samband við borgaraþjónustuna til að lýsa yfir áhuga á sæti. Hún komi svo skilaboðum áleiðis til viðeigandi stjórnvalda. „Það er takmarkaður fjöldi sæta í boði fyrir ríkisborgara Evrópuríkja og fyrstur kemur fyrstur fær,“ segir í póstinum. „Athugið að akstur til brottfararstaðar og undirbúningur því tengt er alfarið á ykkar vegum. Þá ber fólk sjálft ábyrgð á að koma sér áfram til Íslands frá komustað.“