Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs og möguleiki á vegalokunum

  • What: Weather warnings are in effect for South and Southeast Iceland due to blizzard conditions.
  • Impact: The weather may cause worsening driving conditions and potential road closures.
Read Full Article →

Gular viðvaranir eru í gildi fyrir Suðurland og Suðausturland vegna norðaustanhríðarveðurs með snjókomu og slæmu skyggni. Veðrið getur valdið versnandi akstursskilyrðum. Óvissustig vegna veðurs er á veginum milli Skóga undir Eyjafjöllum og austur á Mýrdalssand, sem og í Öræfasveit, milli Skaftafells og Jökulsárlóns, og verður það í gildi til hádegis, að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Viðvörunin á Suðausturlandi á einkum við vestantil og austur að Breiðamerkursandi. Svo gæti farið að vegum verði lokað með stuttum fyrirvara og því brýnt að fylgjast með á vefjum Vegagerðarinnar og Veðurstofu . Veðurspáin er annars svohljóðandi: Austan og norðaustan stinningskaldi, allhvass vindur eða hvassviðri og víða snjókoma sunnantil, hvassast syðst. Hægari norðlæg átt og smáél við norðurströndina. Dregur smám saman úr vindi og ofankomu sunnanlands á morgun, fyrst vestantil. Norðan kaldi eða stinningskaldi og snjókoma fyrir norðan annað kvöld. Frost allt að tíu stig en sums staðar frostlaust allra syðst.

Share this article