- What: The Icelandic Road and Coastal Administration warns of localized blizzard conditions in Mýrdalur and Mýrdalssandur.
- Impact: Travelers on the Ring Road in southern Iceland should expect reduced visibility and worsening road conditions.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vara við staðbundinni hríð á Suðurlandi Hugrún Hannesdóttir Diego Búist er við talsverðum hríðarbyl í Mýrdal og á Mýrdalssandi í kvöld og í nótt. Vegagerðin varar við versnandi færð og skyggni á Hringveginum á þeim slóðum. Hríðin gæti varað þar til síðdegis á morgun. Varað er við versnandi færð og skyggni. Mynd tengist frétt ekki beint. RÚV / Kristín Sigurðardóttir Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Trainspotting 30 ára – Ekki aðeins saga um neyslu heldur vopn í menningarstríði Trainspotting var mikilvægt vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi við yfirstéttina í Bretlandi, segir ritstjóri menningartímarits sem gaf fyrstu kafla sögunnar út. 30 ár eru liðin síðan kvikmyndin var frumsýnd. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Panama Grafhýsi talið varpa ljósi á líf frumbyggja Mið- og Suður-Ameríku Grafhýsi sem talið er vera frá árunum 800 til 1000 eftir okkar tímabil fannst nýlega við fornleifauppgröft í Panama. Þar getur að líta gull og leirker og er talið varpa frekara ljósi á líf frumbyggja fyrir nýlendutíma Spánverja. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Haraldur Sigurðsson – Halli – látinn Haraldur Sigurðsson, skemmtikraftur með meiru er látinn á 84. ári. Hann og Laddi bróðir hans voru eitt vinsælasta gríntvíeyki landsins um árabil. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram kalt í veðri Hugrún Hannesdóttir Diego Djúp lægð suðvestur í hafi þokast norðaustur og veldur hægt vaxandi austanátt í dag. Búist er við þurru og björtu veðri en dálitlum éljum austanlands. Austan kaldi síðdegis og skýjað með köflum en allhvasst eða hvasst syðst og stöku él þar. Í nótt komst frost niður í 10 til 15 stig og áfram verður kalt í veðri í dag. Dægursveifla hitans er hins vegar orðin það mikil að hiti nær sums staðar að skríða yfir frostmark sunnan heiða. Búist er við dálítilli slyddu eða snjókomu sunnanlands á morgun og 0 til 6 stiga frosti. Forst komst niður í 10 til 15 stig í nótt. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ungverjar standa í vegi fyrir láni Evrópusambandsins til Úkraínu Ungversk stjórnvöld segjast ekki ætla að samþykkja fyrirhugað 90 milljarða evra lán Evrópusambandsins til Úkraínu fyrr en stjórnvöld í Kyiv opni fyrir flutninga á rússneskri olíu til Ungverjalands. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL dagur 16: Dagur keppir í skíðagöngu og Klæbo getur unnið sjötta gullið Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo getur í dag unnið sjöttu gullverðlaun sín á Vetrarólympíuleikunum. Hann keppir þá í 50 km skíðagöngu klukkan tíu þar sem Dagur Benediktsson verður á meðal keppenda. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það sem verið að kjafta úti í bæ, mér gæti ekki verið meira sama“ „Ef ég ætlaði að velta fyrir mér hvað fólk segði um mig eða hvaða skoðanir það hefði á mér þá myndi ég ekki gera annað allan daginn,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Handtekinn í annarlegu ástandi fyrir að bakka ítrekað á hús Markús Þ. Þórhallsson Ökumaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að tilkynnt var að hann hefði ítrekað bakkað bíl sínum á hús. Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Hann reyndist í mjög annarlegu ástandi að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og því vistaður í klefa. Lögreglan var kölluð til vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Þar var einnig maður handtekinn fyrir að brjóta rúðu í bifreið og annar fyrir akstur eftir göngugötu auk þess sem sá reyndist ökuréttindalaus. Mjög ölvaður maður var handtekinn í úthverfi þar sem hann gekk um og skemmdi farartæki. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ný skýrsla: Ungur maður drepinn í aðgerðum heimavarnarráðuneytis fyrir ári Markús Þ. Þórhallsson Fulltrúi heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna skaut rúmlega tvítugan ríkisborgara til bana í Texas í mars á síðasta ári. CNN greinir frá. Ruben Ray Martinez var 23 ára þegar hann var skotinn til bana. AP/Rachel Reyes / Uncredited Nýútgefin skýrsla sýnir að Ruben Ray Martinez gæti hafa verið fyrstur af sex bandarískum ríkisborgurum sem drepnir hafa verið í tengslum við harðar aðgerðir Bandaríkjaforseta gegn innflytjendum í landinu. Martinez er sagður hafa verið stöðvaður við umferðareftirlit og heimavarnaráðuneytið staðhæfði í gær að hann hefði reynt að aka á lögreglumenn. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Framkvæmdastjóri FÍB segir verktaka bera mikla ábyrgð varðandi svifryksmyndun Framkvæmdastjóri FÍB segir verklag Vegagerðarinnar við rykhreinsun stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu fjarri viðmiðum á öðrum Norðurlöndum og lýðheilsumarkmiðum stjórnvalda. Jafnframt sé ábyrgð verktaka mikil því frá framkvæmdasvæðum berist mikið ryk. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tollar Trumps Nýir 10% tollar taka gildi næstkomandi þriðjudag Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði í heimildarleysi lagt tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra. Hann hefur undirritað tilskipun um 10% alþjóðlega tolla. Búast má við löngum deilum um endurgreiðslur. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Reiknivilla leiddi til rangs svars um hlutfall ákærðra útlendinga Rangir útreikningar á gögnum dómsmálaráðuneytisins, mistök, leiddu til þess að ráðherra sagði hærra hlutfall erlendra borgara hafa verið ákært fyrir hegningarlagabrot en raun ber vitni. Svo virðist sem Morgunblaðið hafi fallið í sömu gryfju. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist William Shatner boðar mikið stuð á eigin þungarokksplötu Leikarinn William Shatner boðar útgáfu þungarokksplötu á þessu ári þar sem hann sjálfur, í samstarfi við þekktar rokkstjörnur, flytur alþekkt lög auk nokkurra nýrra. Leikarinn er 94 ára og boðar heljarstuð á plötunni. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Minnst tólf drepin í árásum Ísraelshers Markús Þ. Þórhallsson Stjórnvöld í Líbanon segja tólf hafa verið drepna í loftárásum Ísraelshers á landið austan- og sunnanvert í gær og 24 hafa særst, þar af þrjú börn. Kona gengur framhjá húsum í flóttamannabúðum þar sem sjá má myndir af leiðtogum Írans og Hezbollah. EPA / WAEL HAMZEH Tíu týndu lífi í árásum á Bekaa-dal og tveir í stærstu flóttamannabúðum Palestínumanna nærri borginni Sidon. Herinn segist hafa beint atlögum sínum að stjórnstöðvum uppreisnarsveita Hamas annars vegar og Hezbollah hins vegar, sem segja háttsettan liðsmann hafa fallið. Ísraelsmenn gera iðulega árásir á Líbanon þrátt fyrir vopnahléssamkomulag frá nóvember 2024 sem ætlað var að stöðva átök við Hezbollah sem staðið höfðu rúmt ár. 20. febrúar 2026 kl. 22:41MENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Ráðherra rappar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, rifjaði upp gamla takta í Vikunni með Gísla Marteini. 20. febrúar 2026 kl. 22:19MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Valdimar leikur Yfir borgina Hljómsveitin Valdimar tók lagið Yfir borgina í Vikunni með Gísla Marteini. 20. febrúar 2026 kl. 20:57INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Útkall slökkviliðs reyndist án tilefnis Guðmundur Atli Hlynsson Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var nýverið sent í útkall í Æsufelli í Breiðholti. Steinþór Darri Þorsteinsson varðstjóri staðfestir þetta við fréttastofu en segir að aðgerðin geti reynst minni háttar. Tilkynning hafi borist um reyk í íbúðarhúsi í Æsufelli. Slökkvilið sé enn ekki komið á vettvang og umfangið óvíst að svo stöddu. Steinþór segir aðeins eina tilkynningu hafa borist um mögulegan eldsvoða. Uppfært 21:20: Steinþór Darri segir útkallið hafa reynst tilefnislaust. Reykur hafi átt upptök í eldamennsku á svölum. RÚV / Ragnar Visage 20. febrúar 2026 kl. 20:51MENNING OG DÆGURMÁL Samfélag Skíða, svamla og föndra í vetrarfríi Grunnskólabörn víða um land gerðu sér glaðan dag í tilefni vetrarfrís. 20. febrúar 2026 kl. 20:26ÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Noregur sló eigið gullmet og sturlaðir leikar hjá Sturlu Noregur sló eigið met á þriðju Vetrarólympíuleikunum í röð yfir flest gullverðlaun á einum og sömu leikunum í dag. Norðmenn urðu í tveimur efstu sætunum í 15 km hópstarti í skíðaskotfimi karla. 20. febrúar 2026 kl. 20:21INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Álag aukist mikið hjá Barnavernd Álag hefur aukist mikið hjá Barnavernd Reykjavíkur og hópur barna er í mjög miklum vanda segir framkvæmdastjórinn. Borgin sendi 30 börn í sumarvist í Bakkakot á sex ára tímabili um og eftir aldamót. 20. febrúar 2026 kl. 19:36INNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Börnum félagsráðgjafa hótað og setið um heimili þeirra Langflestir félagsráðgjafar hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi í starfi, samkvæmt könnun sem gerð var meðal stéttarinnar. Dæmi eru um að setið sé um heimili þeirra og að börn þeirra verði fyrir hótunum. 20. febrúar 2026 kl. 19:00INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Tugir milljóna í undirbúning líforkuvers sem óvíst er að rísi Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess verið lokað. Þegar hafa farið tugir milljóna í undirbúning verkefnisins. 20. febrúar 2026 kl. 18:59INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum gegn íranska byltingaverðinum Íranski byltingarvörðurinn er kominn formlega á hryðjuverkalista ESB. Ísland er aðili að þvingunaraðgerðum sambandsins. 20. febrúar 2026 kl. 18:15INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Tveir starfsmenn heilsugæslunnar með berklasmit: „Þau eru að fara af stað í erfiða vegferð“ Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mjög íþyngjandi að greinast með berkla þrátt fyrir að engin einkenni séu til staðar. Tveir starfsmenn heilsugæslunnar greindust með berklasmit í gær. 20. febrúar 2026 kl. 18:14INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg dreifir heitum mat á ný Reykjavíkurborg hefur náð samningi við verktaka og byrjar aftur að dreifa heitum máltíðum í mars eftir að loka þurfti framleiðslueldhúsi á Vitatorgi fyrr í mánuðinum