- What: Severe weather conditions are expected
- Impact: Travel may be dangerous due to snow and strong winds
Aðstæður gætu orðið varasamar víða um land í dag og alveg fram á morgun.RÚV / Bjarni Rúnarsson Búast má við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land í dag. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að færi verður oft mjög blint og akstursskilyrði því erfið í slíku hríðarástandi. Færð getur spillst hratt í dag. Þetta á helst við á Hellisheiði, Mosfellsheiði og í Þrengslum á Suðvesturlandi, á Holtavörðuheiði, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði á Norðvesturlandi, á Austfjörðum og mestöllum Vestfjörðum. Þetta ástand varir fram yfir miðnætti á flestum stöðum og jafnvel undir morgun á Vestfjörðum.