Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Úr kaldaskít í skítabrælu

Read Full Article →

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað nú í vikunni að afloknum brælutúrum. Páll Jónsson landaði á mánudag og Sighvatur landaði í morgun. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði tíðindamanni heimasíðu Síldarvinnslunnar að um sannkallaðan brælutúr hefði verið að ræða. „Við byrjuðum í kaldaskít en síðan skall á skítabræla. Um var að ræða fimm lagnir í túrnum og árangurinn var ekkert sérstakur. Við vorum á Faxaflóanum og þar er mikil loðna þannig að þorskurinn tekur ekki beitu í miklum mæli. Þetta allt saman þýddi heldur slæmar aðstæður til línuveiða. Við byrjuðum að leggja á Eldeyjarbanka og þaðan var farið í Jökuldýpið. Þegar veðrið var sem verst flúðum við í Garðsjóinn og lögðum þar hálfa lögn. Síðan var endað í Jökuldýpinu. Aflinn var 74 tonn, mest af þorski en að auki ýsa og langa. Þetta var túr sem einkenndist af takmarkaðri veiði og haugasjó,” sagði Jónas Ingi. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, hafði svipaða sögu að segja. „Þetta var bölvaður brælutúr. Suðvestanáttin varð eins slæm og hún getur orðið. Það var einungis fjögur og hálf lögn í túrnum og aflinn var samtals 65 tonn. Við byrjuðum í Jökuldýpinu, síðan var farið inn á Breiðafjörð og þaðan í Kolluál. Nauðsynlegt reyndist að fara í land og fá viðgert en lokalögnin var á Búðagrunni og hún var mjög góð. Þar fengum við um 20 tonn. Aflinn í túrnum var langmest ýsa,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Share this article