Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í Grindavík í vikunni. Páll Jónsson landaði á mánudag og var Benedikt Jónsson skipstjóri býsna sáttur við aflabrögðin í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Aflinn var 109 tonn, mest þorskur og ýsa. Í reyndinni var þetta góður túr miðað við aðstæður, en það var skítabræla allan tímann. Við byrjuðum á að taka tvær lagnir í Meðallandsbugt, síðan voru tvær teknar fyrir austan Höfða og endað á hálfri lögn í Bugtinni. Veiðin var nokkuð jöfn og hin þokkalegasta,” sagði Benedikt. Sighvatur landaði 52 tonnum í gær og var Óli Björn Björgvinsson ekki fullkomlega sáttur við aflabrögðin. „Við byrjuðum á að fara norður í Húnaflóa og tókum þar tvær lagnir. Þar reyndist vera of mikill þorskur í aflanum svo við færðum okkur í Faxaflóann. Þar voru einnig teknar tvær lagnir en veiðin var slök og þar vantaði þorsk í aflann sem er heldur óvenjulegt. Í túrnum var leiðindaskítaveður megnið af tímanum. Svona túrar koma inn á milli og menn verða bara að sætta sig við það,” sagði Óli Björn. Bæði skip héldu til veiða á ný strax að löndun lokinni.