Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ

Read Full Article →

Nýr listi Viðreisnar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur á aðalfundi félagsins í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn býður fram lista í Reykjanesbæ. Arnar Páll Guðmundsson leiðir listann. Hann er viðskiptafræðingur og fyrrverandi formaður Viðreisnar á Suðurnesjum. Annað sæti listans skipar Davíð Skarphéðinsson, byggingafræðingur. Í þriðja sæti er Ásta Kristín Guðmundsdóttir, kennari og verkefnastjóri, og í fjórða sæti er Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, gæðastjóri Reykjanesbæjar. Á aðalfundinum var einnig kosin ný stjórn: Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir formaður, Sigrún G. Bates, Jón Garðar Snædal Jónsson, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, og Sveinn Enok Jóhannsson. Varamenn voru kosnir þeir Davíð Skarphéðinsson og Arnar Páll Guðmundsson.

Share this article