Viðreisn í Reykjavík kynnti í dag framboðslista sinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og handritshöfundur, er oddviti listans og Róbert Ragnarsson, stjórnsýsluráðgjafi, skipar annað sætið. Hann laut lægri hlut fyrir Björgu um oddvitasætið. Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er í þriðja sæti og Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri Kolaportsins, skipar fjórða sæti. Listinn var formlega kynntur í Laugarnesskóla og sagði Björg að kosningarnar í vor verði kosningar breytinga. „Við ætlum að einfalda kerfið, gera fjármál borgarinnar sjálfbær, greiða úr flækjum og setja fókus á grunnþjónustu og kjarnaverkefni. Við ætlum að afrugla Reykjavík. “ Aðalsteinn Leifsson ekki á lista Athygli vekur að Aðalsteinn Leifsson, fyrrum aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og varaþingmaður Viðreisnar er ekki á listanum. Aðalsteinn gaf kost á sér sem oddviti flokksins í Reykjavík í desember. Fjögur sóttust eftir að leiða flokkinn. Leiðtogaprófkjör fór fram í lok janúar og lenti Aðalsteinn í öðru sæti. Aðalsteinn hætti störfum sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra í lok febrúar og hefur skráð sig í guðfræðinám. Framboðslisti Viðreisnar í heild sinni: Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og handritshöfundur Róbert Ragnarsson, stjórnsýsluráðgjafi Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri Kolaportsins Eyþór Máni Steinarsson, frumkvöðull og meðstofnandi Hopp Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi Borgarholtsskóla og formaður Félags náms- og starfsráðgjafa Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar og laganemi Monika Katarzyna Waleszczyńska, mannauðsstjóri Samúel Torfi Pétursson, skipulagsverkfræðingur Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðikandídat, starfsmaður íbúðakjarna og formaður Viðreisnar í Reykjavík Hákon Skúlason, framkvæmdastjóri Emma Ósk Ragnarsdóttir, kennari og stjórnmálafræðingur Oddgeir Páll Georgsson, hugbúnaðarverkfræðingur Helga Dögg Björgvinsdóttir, viðskiptafræðingur Bjartur Hrafn Jóhannsson, starfsmaður neyðarskýlis Ragnheiður Dóra H. Jónsdóttir, stjórnmálafræðinemi og frístundaleiðbeinandi Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur Ester Ósk Gestsdóttir Waage, verkefnastjóri Bjarki Fjalar Guðjónsson, lögfræðingur Diljá Ámundadóttir Zoega, fyrrv. varaborgarfulltrúi og sálgætir Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID Emilía Björt Írisard. Bachmann, starfsmaður þingflokks Viðreisnar Sverrir Örn Kaaber, fyrrv. skrifstofustjóri Noorina Khalikyar, læknir Steinar Logi Hafsteinsson, fyrirtækjaráðgjafi Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, deildarfulltrúi og verkefnastjóri hjá Listaháskóla Íslands Gústaf Berg Guðnýjarson, stjórnmálafræðingur Íris Arnlaugsdóttir, verkefnastjóri Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Jana Guðrún Jahzara T. Maillard, nemi Jakob Löve, hagfræðinemi Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, leiklistar- og tónlistarfræðingur Rúnar Guðjónsson, hagfræðingur María Malmquist, lögfræðinemi Ásmundur Helgason, bókaútgefandi Draumey Ósk Ómarsdóttir, leikskólaleiðbeinandi Helgi Hrafn Gunnarsson, hugbúnaðarsmiður og tækniráðgjafi Kristín A. Árnadóttir, fyrrv. sendiherra Haukur Árnason, kennari Andrea Þormar, list- og safnafræðingur Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður Anna Hildigunnur Jónasdóttir, gagnasérfræðingur Úlfur Atli Stefaníuson, launaráðgjafi Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Jón Gnarr, þingmaður og fyrrv. borgarstjóri Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík