Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kosningaáherslur Viðreisnar kynntar á Klambratúni

Read Full Article →

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, kynnti í dag kosningaáherslur flokksins ásamt öðrum frambjóðendum í efstu sætum. Björg segir Viðreisn ætla að búa til borg sem börn vilji búa í. „Í dag er Reykjavík biðlistaborg og það er víða pottur brotinn í skólabyggingum, íþróttamannvirkjum og öðru,“ segir hún. „Við leggjum áherslu á það að peningarnir sem koma inn sem tekjur í borgarsjóð fari eins einfalda leið aftur og þeir geta aftur út í hverfin. Þetta þýðir að við ætlum að taka til í stjórnsýslunni, afflækja og afrugla Reykjavík, koma peningunum hraðar aftur út í grunnþjónustuna. “ Vilja vera í forystu í skólamálum Ásamt þessu styðji Viðreisn meðal annars lengingu fæðingarorlofs, Borgarlínu, núverandi samgöngusáttmála og vilji einfalda reglur og leyfisveitingar. Þá segir Björg að Reykjavík eigi að vera í forystu í skólamálum. „Við ætlum að bjóða upp á geggjuð starfsskilyrði. Það er þannig að önnur hver skólabygging hefur verið mygluð á síðustu árum og við sjáum að þetta hefur haft gríðarleg áhrif á kennarastéttina.“ Fjármagna megi rekstur með sölu á eignum Róbert Ragnarsson, sem er í 2. sæti á lista Viðreisnar, sagði í kynningarræðu sinni að stefnan yrði sett á að selja fyrirtæki og fasteignir sem ekki tengdust kjarnastarfsemi borgarinnar og nefndi Perluna, sem seld var nýlega, sem dæmi. „Við viljum færa ábyrgð á rekstri hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða aftur til ríkisins sem ber ábyrgð á þeirri þjónustu samkvæmt lögum. Það mun ekki fækka hjúkrunarrýmum, heldur færa ábyrgðina á réttan stað og spara peninga fyrir borgarbúa,“ sagði Róbert í ræðu sinni. Þá boðaði hann einnig aðgerðir til að skýra ábyrgð á rekstri og viðhaldi eigna og tryggja að fjármunir nýtist betur í þágu íbúa. „Við ætlum að lista upp öll verkefni borgarinnar, í samstarfi við stjórnendur, og leggja áherslu á grunnþjónustu og kjarnaverkefni. Í þessu felst auðvitað að stöðugildum í stjórnsýslu mun fækka. Ég hef gert það áður með góðum árangri, og treysti mér til að gera það aftur,“ sagði Róbert sem áður var bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.

Share this article