Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.4.2026 | 17:47 Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Björg Magnúsdóttir og aðrir frambjóðendur Viðreisnar á Klambratúni í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Viðreisn kynnti helstu áherslur sínar fyrir borgarstjórnarkosningar á Klambratúni í dag. „Til þess að næsta kynslóð velji að vera hérna þarf Reykjavík að virka,“ sagði Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar fyrir komandi kosningar. „Biðlistaborgin er ekkert sérstaklega sjarmerandi. Reykjavík á að vera frjálslyndari, skemmtilegri, einfaldari og fallegri. Hér á að vera gaman að stofna og reka fyrirtæki. Hverfin eiga að vera sterk og sjálfstæð - og innihalda alla lykilþjónustu fyrir fólk og fjölskyldur,“ sagði hún. Flokkurinn leggi áherslu á að gera borgina að eftirsóknarverðum stað fyrir næstu kynslóð Reykvíkinga. Björg sagði það lykilatriði að tryggja að Reykjavík verði borg sem fólk velur að búa í til framtíðar. mbl.is/Karítas Á að auðvelda lífið en ekki þvælast fyrir „Borgin á að vera til staðar þegar við þurfum á henni að halda, auðvelda líf okkar en ekki þvælast fyrir að óþörfu og leggja steina í götu fólks og atvinnulífs. Borgin á að vera þjónustustofnun – ekki eftirlitsstofnun. Þessu ætlum við að snúa við,“ sagði Björg. Viðreisn leggi áherslu á að auka framboð af hagkvæmu húsnæði og einfalda regluverk í kringum uppbyggingu. Með því að hraða leyfisveitingum og auka sveigjanleika í skipulagi vilji flokkurinn stuðla að því að fleiri íbúðir rísi hratt og að húsnæðismarkaðurinn virki betur fyrir ólíka hópa. Þá er áhersla lögð á að skattfé borgarbúa skili sér hraðar og beint út í hverfin. Borgin fái um 200 milljarða á ári í tekjur, en Viðreisn vill taka milljarð úr stjórnsýslunni og færa þessa fjármuni beint í grunnþjónustuna, inn í skóla, íþróttir, velferð og umhirðu borgarinnar. Þá vill Viðreisn einfalda stjórnsýslu borgarinnar, stytta boðleiðir og byggja upp aukið traust til fagfólks, fyrirtækja og íbúa. mbl.is/Karítas Taki forystu í skólamálum Tekið er fram í tilkynningu frá flokknum að Reykjavík eigi að vera í forystu í skólamálum. „Mikilvægt er að bæta starfsskilyrði í skólum borgarinnar, m.a. með því að taka á húsnæðis - og mygluvanda og manneklu. Viðreisn styður fjölbreytt rekstrarform í leikskólum og dagvistun og vill standa vörð um stórar kvennastéttir, enda flokkur jafnréttis. Þá vill Viðreisn tryggja fjölbreyttar og skilvirkar samgöngur með stuðningi við Samgöngusáttmála, Borgarlínu og lausnir sem auka á frelsi í samgöngumáta,“ segir í tilkynningunni. „Sterkar almenningssamgöngur eru bæði umhverfismál og jafnréttismál en ekki síst kjaramál fyrir fjölskyldur. Ef strætókerfið virkar, við höfum deilibíla og fjölbreyttar lausnir geta fjölskyldur losað sig við bíl númer tvö og þrjú í rekstri. Og það telur,“ sagði Björg í dag. Grunnþjónusta og kjarnaverkefni Róbert Ragnarsson, sem er í öðru sæti á listanum, boðar aðgerðir til að skýra ábyrgð á rekstri og viðhaldi eigna og tryggja að fjármunir nýtist betur í þágu íbúa. „Við ætlum að lista upp öll verkefni borgarinnar, í samstarfi við stjórnendur, og leggja áherslu á grunnþjónustu og kjarnaverkefni. Í þessu felst auðvitað að stöðugildum í stjórnsýslu mun fækka. Ég hef gert það áður með góðum árangri, og treysti mér til að gera það aftur,“ sagði Róbert. „Reykjavíkurborg er höfuðborg allra landsmanna og við viljum vera til staðar fyrir alla landsmenn. Skapa tækifæri, skapa atvinnu, og vera vettvangur menningarlífs. Það þýðir ekki að við eigum að leysa verkefni og þjónustu fyrir önnur sveitarfélög án eðlilegra greiðslna. Það er komið gott af því að skattgreiðendur í Reykjavík niðurgreiði velferðarþjónustu fyrir önnur sveitarfélög,“ sagði Róbert. Mikið líf var á Klambratúni í dag og fleiri en Viðreisnarfólk sem nýtti sér svæðið. mbl.is/Karítas Vilja selja fyrirtæki og fasteignir Flokkurinn segist auk þess ætla að selja fyrirtæki og fasteignir sem tengjast ekki kjarnastarfsemi borgarinnar og nýta þá peninga til að borga niður skuldir. Perlan sé gott dæmi um fasteign sem borgin þurfi ekki að eiga, og hún var nýlega seld með góðum árangri. Viðreisn vill halda áfram á þeirri braut. „Egóin okkar munu ekki þvælast fyrir þannig að við séum í sífellu að skipta um forystu í nefndum og ráðum – skipta um nýjan formann borgarráðs eða borgarstjóra. Við erum ekki að leita okkur að þægilegri innivinnu heldur bjóðum okkur fram til þess að mæta peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í,“ sagði Björg að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Mikil óvissa hjá Liverpool „47 kökudagar“ Helstu ráðamenn mættir á fund í Hvíta húsinu Verður ekki seldur á tombóluverði Umræðan Homo Reykjavicus Strandveiði í kvóta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Bílvelta á Hringbraut Óljósir samningar um aðlögun Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Björg: „Þessu ætlum við að snúa við“ Mikil óvissa hjá Liverpool „47 kökudagar“ Helstu ráðamenn mættir á fund í Hvíta húsinu Verður ekki seldur á tombóluverði Umræðan Homo Reykjavicus Strandveiði í kvóta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri Óljósir samningar um aðlögun „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils

Share this article