Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 9:17 Tími til að breyta Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, telur Samfylkinguna ekki boða breytingar. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Reykjavík er lifandi borg, ekki bara stjórnsýslueining – hún er borg ólík öllum öðrum; stórborg og smábær, ung og kraumandi, en saga undir hverjum steini. En borgaryfirvöld hafa misst sjónar á þessu. Íbúarnir og hversdagurinn hafa gleymst í skýjaborgum og skrifræði. Síðustu vikur höfum við farið vítt og breitt um borgina. Hitt eldhuga í viðskiptum og listum, unga sem aldna – fólk með ólíka reynslu en þá sameiginlegu trú að borgin okkar geti orðið betri. Alls staðar er ákallið hið sama – það er kominn tími á breytingar – nýjar og skynsamlegri áherslur og ferska vinda í Ráðhúsið. Margt hægt að gera strax Það er kominn tími til að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili er hægt að skapa borgurunum auðveldara líf, einfaldari hversdag og skilvirkari borg. Of lengi hafa kjósendur setið undir hástemmdum loforðum sem reynast ófjármögnuð, ótímasett og óraunhæf. Reykjavík þarf tafarlausar aðgerðir. Húsnæðisvandinn vex, umferðartafir aukast, biðlistar barna lengjast og óráðsían í rekstrinum eykst. Verkefnin þola enga bið, þau þarf að leysa strax. Við höfum því brugðið út af þeim vana og sett fram verkefnalista sem er fjárhagslega raunhæfur, tímasettur og til þess fallinn að skila sýnilegum árangri fyrir borgarbúa – strax á næsta kjörtímabili. Úr sænum rís borgin Þó að margt sé hægt að gera strax eru möguleikarnir í Reykjavík óþrjótandi. Samhliða skýrum tímasettum verkefnalista höfum við kynnt framtíðarsýn um borgina við sundin. Við viljum að borgin og lífið geti vaxið með sjávarsíðunni. Þar sem svæðin við sundin nýtast betur og sköpuð verða ný fjölskylduvæn hverfi með góðum tengingum, þjónustu og útivist. Verkefnið verður ekki klárað á einu kjörtímabili, en við munum hefjast handa strax. En framtíðarsýn okkar lýtur ekki aðeins að skipulagsmálum. Við viljum skapa borg sem styður við fólk í barneign, tryggir áreiðanlegar lausnir að loknu fæðingarorlofi og skólakerfi í fremstu röð. Borg sem tryggir aðgengi að íþróttum og útivist, fjölbreyttum húsakosti, öruggu borgarumhverfi og grænum svæðum. Borg þar sem sést til sólar. Hér á fólk að komast hraðar á milli staða og hafa aðgang að blómlegu menningarlífi og fjölbreyttri þjónustu. Hingað eiga hugmyndir að koma til að dafna og verða að tækifærum – og hér á kynslóðin sem byggði landið að búa við bestu skilyrði. Látum atkvæðin telja Meirihlutar hafa fallið í Reykjavík í mörgum síðustu kosningum. Ávallt hefur þó ríkjandi valdhöfum tekist að reisa þá við með nýjum samstarfsflokkum. Frá 2010 hafa hvorki fleiri né færri en níu flokkar komið að stjórn borgarinnar. Níu flokkar í bandalagi um tvennt: að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum og koma í veg fyrir breytingar. Ekkert annað. En nú er valið skýrt. Nýr meirihluti undir forystu sterks og sameinaðs Sjálfstæðisflokks, eða áframhald af því sama. Reynslan sýnir okkur að atkvæði greitt öðrum en Sjálfstæðisflokki hefur reynst atkvæði greitt óbreyttu ástandi. Endurtökum ekki mistökin, tryggjum Sjálfstæðisflokknum nægan styrk til að verða burðarás í nýjum meirihluta strax að loknum kosningum. Það er vor í Reykjavík og við finnum meðvindinn. Við höfum metnað fyrir framtíðinni og trúum því að saman getum við gert Reykjavík að bestu borg í heimi. Það er kominn tími til að breyta. Strax. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn í dag. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Aðsend grein: Tími til að breyta Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Aðsend grein: Í dag kjósum við nýja bæjarstjórn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Aðsend grein: Tími til að breyta Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Aðsend grein: Í dag kjósum við nýja bæjarstjórn Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump: Xi sammála um Íran án kjarnorkuvopna Beðið í ár eftir svari frá Daða Má Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir Þetta eru einkenni hantaveiru Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum