Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Reykjavík er frábær borg

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 7:00 Reykjavík er frábær borg Pétur H. Marteinsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Reykjavík er frábær borg. Þótt hún sé enn ung hafa orðið framfarir á lífsgæðum borgarbúa á síðustu áratugum sem eru sennilega með þeim mestu í heiminum á því tímabili. Undir forystu jafnaðarfólks hefur tekist að breyta borg sem var rekin af geðþóttaákvörðunum og með valdboði í þjónandi stjórnsýslu. Reykjavík dagsins í dag iðar af mannlífi. Borgarbúar mega vera stoltir af borginni. Hún er höfuðborg á heimsmælikvarða. Og við erum rétt að byrja. Höfnum skörpum hægribeygjum Ég trúi því að samfélög eins og það sem við eigum í Reykjavík, sem byggjast á samheldni og jöfnuði, hafi mikla yfirburði yfir samfélög einstaklingshyggju og ójöfnuðar. Þess vegna vil ég ekki sjá harða hægribeygju í borgarpólitíkinni ná völdum og brjóta niður það sem við höfum byggt upp saman. Málflutningur hægriflokkanna í borginni er allur á þann veg að hér sé meira og minna allt ómögulegt þegar það er svo margt sem við megum vera stolt af. Þeir leggja áherslu á að tala niður borgina, langbest rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu, til að sannfæra borgarbúa um að þeir þurfi að selja verðmætar eignir, meðal annars úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur, og hleypa auknum einkarekstri að mikilvægustu þjónustukerfum okkar. Hægrið vill einfaldlega búa til markaðsvöru úr lífsgæðum Reykvíkinga sem fáir útvaldir fá að hagnast á, en við öll hin líðum fyrir. Einföldum kerfin Auðvitað gerist það í borg sem er að vaxa hraðar en nær allar borgir í Evrópu að það er ýmislegt sem betur mætti fara. Það á að hlusta á ábendingar borgarbúa og taka þær alvarlega. Ég þekki þetta af eigin reynslu, enda hef ég rekið fyrirtæki í borginni, byggt upp menningarstarfsemi og þjónustu fyrir borgarbúa og unnið að þróun nýs húsnæðis fyrir fyrstu kaupendur í samstarfi við borgina. Ég þekki þær áskoranir sem blasa við þeim sem vilja auðga líf borgarbúa á þennan hátt. Hér þarf að huga að því að einfalda kerfið og gera slíkt frumkvæði einfaldara fyrir frumkvöðla. Það ætlum við að gera. 27 kílómetrar af bílum Ein mikilvægasta ákvörðun sem tekin hefur verið í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins var gerð samgöngusáttmálans sem var undirritaður árið 2019. Þá ákvörðun þurfti að taka vegna þess að bílum á götum borgarinnar fjölgar um 70 að meðaltali á viku. Til að setja það magn í annað samhengi þá þýðir það að þeir bílar sem bætast við umferðina á ári gætu myndað um það bil 27 kílómetra langa bílaröð frá Háskóla Íslands og út á Kjalarnes. Sáttmálinn var svo tekinn upp nokkrum árum síðar og skrifað undir uppfærslu. Nú boða stjórnmálaöfl á hægri kantinum að það þurfi að endurskoða hann frá grunni. Slíkt ábyrgðarleysi myndi valda borgarbúum gríðarlegum skaða og tefja úrbætur í umferðinni um mörg ár. Við höfnum þeirri vegferð algjörlega. Setjum börnin í fyrsta sæti Í leikskólamálum hefur jafnaðarfólk lagt mikla áherslu á það í aðdraganda komandi kosninga að lögfesta rétt barna til leikskólavistar, taka upp systkinaforgang, bæta vinnuaðstæður og fjölga leikskólaplássum um 1.500 á kjörtímabilinu til að bjóða yngri börnum inn á leikskóla. Þessar áherslur koma í kjölfar Reykjavíkurleiðarinnar svokölluðu sem kynnt var fyrr á árinu og hefur það markmið að gera leikskóla borgarinnar að aðlaðandi vinnustað, að minnka bil milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bæta mönnunarstöðu og um leið mæta foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá efnahagslegri stöðu þeirra. Íbúðir sem fólk hefur efni á Við þurfum að byggja íbúðir sem fólk hefur efni á. Reykjavík hefur verið leiðandi í þeirri vegferð á síðustu árum. Rúmlega tvær af hverjum þremur almennum íbúðum, sem ætlaðar eru fyrir tekjulægri hópa, sem risið hafa í landinu eru í Reykjavík. Þar eru líka meira en þrjár af hverjum fjórum félagslegum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Í kosningaáherslum okkar er lagt upp með að byggja um 6.000 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Auk þess hefur náðst tímamótasamkomulag milli ríkisstjórnarinnar, sem leidd er af Samfylkingunni, og borgarinnar um uppbyggingu allt að 1.400 íbúða á reitum innan borgarinnar sem eru í eigu ríkisins. Áhersla verður lögð á að vinna verkefnið hratt og að byggja minni íbúðir sem mest eftirspurn er eftir. Á bilinu 20-30 prósent þeirra verða almennar íbúðir, íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir og búseturéttaríbúðir. Við vitum hvað þarf til Ég veit hvað það er að þurfa á stuðningi að halda og finna að samfélagið grípur mig. Sem gutti í Breiðholtinu fékk ég þann stuðning sem ég þurfti í skólanum. Talmeinafræðing sem kom í hverri viku en líka frábæra kennara sem höfðu trú á mér. Þetta fólk lyfti mér upp og gaf mér aukið sjálfstraust. Ég skil því, af eigin reynslu, hvað það þýðir að þurfa að bera ábyrgð hvert á öðru. Hvað það þýðir að tryggja öllum tækifæri. Hvað það þýðir að taka utan um börn, eldra fólk, öryrkja og aðra hópa sem þurfa á stuðningi að halda. Hvað sterk velferð skiptir raunverulega miklu máli. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Ólík skuldaþróun Grunaður um líkamsárás og rán Aðsend grein: Reykjavík er frábær borg Annar leikmaður með föst skot á HSÍ Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Óstaðbundin störf og búseta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur Flugi Icelandair til New York aflýst Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Nýjast á mbl.is » Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Ólík skuldaþróun Grunaður um líkamsárás og rán Aðsend grein: Reykjavík er frábær borg Annar leikmaður með föst skot á HSÍ Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Óstaðbundin störf og búseta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur Flugi Icelandair til New York aflýst Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur

Share this article