Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kennitölulausu Reykvíkingarnir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 7:00 Kennitölulausu Reykvíkingarnir Líf Magneudóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í Reykjavík búa líklega milljónir kennitölulausra íbúa sem hafa allan rétt til að lifa og búa í Reykjavík um aldur og ævi, líkt eins og við hin. Þessir íbúar samanstanda af fjölbreyttum gerðum lífvera og er framlag þeirra til lífvænlegrar og heilsusamlegrar borgar ómetanlegt. Lífverur þessar sem eru allt frá örsmáum jarðvegsdýrum til tignarlegra fugla, sjávarlífvera og fjölbreytts gróðurs eru undirstaða þess sem gerir borgina okkar einstaka, fallega og frjósama. Við mannverur getum ekki án þeirra verið þó að þær kunni margar að pluma sig mikið betur án okkar. Líffræðileg fjölbreytni á undir högg að sækja hér rétt eins og á heimsvísu. Því miður er það að miklu leyti vegna umsvifa og afskipta okkar mannanna en athafnir okkar hafa bæði beint og óbeint valdið eyðingu búsvæða, hnignun vistkerfa og útdauða tegunda. Við þessu þarf að bregðast og er Reykjavík þar ekki undanskilin. Okkur ber skylda til að búa öllum þessum kennitölulausu íbúum borgarinnar lífvænleg skilyrði og tryggja að þeirra mikilvæga framlag til samfélagsins fari ekki forgörðum. Því hefur Reykjavíkurborg hleypt af stokkunum nýrri og metnaðarfullri aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 sem ber heitið Náttúrulega Reykjavík! Vilji í verki Meginmarkmið nýju aðgerðanna er meðal annars að auka lífsgæði allra borgarbúa með því að vinna betur með náttúrunni í kringum okkur, endurheimta og vernda búsvæði og sporna gegn hnignun lífríkisins. Markmið áætlunarinnar eru metnaðarfull og stendur vilji til þess að Reykjavík verði leiðandi „náttúruborg“. Áhersla verður lögð á að rannsaka og vakta lífríkið ásamt því að vernda og styrkja náttúruleg svæði gegn þeim hættum sem að þeim steðja. Sem dæmi um þær kröftugu aðgerðir sem fram undan eru má nefna áform um að 30% af borgarlandi verði vernduð með friðlýsingum, vatnsvernd eða hverfisvernd fyrir árið 2030. Þá er sérstök áhersla lögð á að friðlýsa fjörur við Ægisíðu og Skerjafjörð í samstarfi við hagaðila og áfram verður unnið að því að efla græna ása og tengingar milli búsvæða. Nú þegar hefur verið ráðist í margvísleg verkefni sem sýna vilja í verki eins og endurheimt votlendis í Úlfarsárdal, endurbætur á hólmanum í Tjörninni, baráttu gegn ágengum plöntum í borgarlandinu ásamt nýjustu friðlýsingunni í Grafarvogi. Þá höfum við aukið áherslu á að halda sem mest í náttúrulega hringrás vatns til að draga úr flóðahættu, létta álag á innviði og bæta lífríkið á nýbyggingarsvæðum. Verndun lífbreytileika helst nefnilega líka í hendur við aðgerðir til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga. Þannig græðum við öll, sama hverrar tegundar við erum! Rödd náttúrunnar Í komandi kosningum verður ýmislegt rætt og mörg mál dregin upp sem mikilvægustu málin. Í þeim umræðum skulum við ekki gleyma íbúunum sem hafa enga kennitölu, mæta ekki á kjörstað og hafa einungis tækifæri til að minna á sig með veru sinni allt í kringum okkur, sýnilegri og ósýnilegri. Það er hagur okkar allra sem viljum búa í gróðursælli og lifandi borg að hlúa vel að þessum sambýlisverum okkar, enda eykur það bæði lífsgæði og heilbrigði. Ég sjálf mæli því með að kjósa flokk sem ætlar að standa við, framfylgja og fjármagna okkar metnaðarfullu stefnu um Náttúrulegu Reykjavík! Það ætlum við í Vinstrinu nefnilega að gera því með fjölbreytni þrífumst við öll best! Líf Magneudóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Kennitölulausu Reykvíkingarnir Írönsk sendinefnd á leið til Islamabad „Góðir feður fá sér vinnu“ Hersveitir áfram þar til „alvöru samkomulag“ næst Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljósblossar á tunglinu Ljá máls á þjóðarsátt Íranar lýsa yfir sigri Þekkt leikkona styður Grindavík Mest lesið Í gær Í vikunni Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Kostnaður langt umfram áætlun 58 ungmenni geta unnið Interrail-lestarpassa Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Kennitölulausu Reykvíkingarnir Írönsk sendinefnd á leið til Islamabad „Góðir feður fá sér vinnu“ Hersveitir áfram þar til „alvöru samkomulag“ næst Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hersveitir áfram þar til „alvöru samkomulag“ næst Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Kostnaður langt umfram áætlun 58 ungmenni geta unnið Interrail-lestarpassa Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Tveir fengu 88 milljónir

Share this article