Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hæstiréttur þyngir refsingu Shamsudin-bræðra og samverkamanns

Read Full Article →

Hæstiréttur þyngdi í dag fangelsisrefsingu bræðranna Jónasar og Elíasar Shamsudin í þriggja ára fangelsi. Þá var Samúel Jói Björgvinsson dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Shamsudin-bræður höfðu áður hlotið tveggja og hálfs árs fangelsisdóm í Landsrétti en Samúel Jói þriggja ára dóm. Ákæruvaldið taldi dóm Landsréttar of vægan og áfrýjaði því málinu til Hæstaréttar. Allir voru mennirnir sakfelldir eftir að um þrjú kíló af MDMA-kristöllum fundust í fölsku lofti í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í fyrra. Lögregla fékk nafnlausa ábendingu um felustaðinn og skipti efnunum út fyrir falsefni og handtók mennina eftir að þeir höfðu sótt það. Fram kemur í dóminum að úr slíku magni af kristöllum hefði mátt framleiða um 23 þúsund MDMA-töflur. Þá voru allir einnig sakfelldir fyrir vörslu á öðrum fíkniefnum og var Jónas Shamsudin einnig sakfelldur fyrir vopnalagabrot. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að ákvörðun Landsréttar um refsingu mannanna hafi byggt á heildstæðu mati, þar á meðal magni þeirra efna sem sakfellt var fyrir og þess sem taldist sannað um þátt hvers og eins. Þetta virti Hæstiréttur en horfði þó einnig til dómafordæma í sambærilegum málum og ákvað því að þyngja ætti refsinguna.

Share this article