Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, í máli sem varðar mesta ketamínsmygl sem lögregla hefur komið upp um hér á landi. Þýsk kona og tveir menn sem búa á Íslandi eru ákærð fyrir smygl á 15 kílóum af ketamíni og fimm kílóum af MDMA-kristöllum til landsins í september. Efnin voru falin í leynilegum hólfum undir framsæti bíls. Lögregla hefur aldrei lagt hald á svo mikið af ketamíni í einu. Kom til landsins með Norrænu Konan kom á bíl með Norrænu til Seyðisfjarðar 17. september. Í bílnum voru fíkniefni sem héraðssaksóknari segir í ákæru að hún hafi flutt frá Hollandi. Konan fór frá Seyðisfirði til Hafnarfjarðar og hitti þar annan mannanna á bílastæðinu við Fjarðarkaup. Þar afhenti maðurinn konunni 290 þúsund krónur og þau héldu að iðnaðarhúsnæði í Hólshrauni. Þangað kom hinn maðurinn á öðrum bíl og sat í honum meðan fólkið byrjaði að taka ketamínið úr bíl konunnar. Maðurinn varð þess var þegar lögregla kom á staðinn og lét þá manninn sem var inni í húsinu vita að yfirvöld væru mætt á staðinn.