Security News

Cybersecurity news aggregator

👮
HIGH News Mbl Innlent

Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum

This article describes a physical smuggling operation, not a software vulnerability, and therefore contains none of the technical details required for a standard security summary. The case involves the concealment of narcotics within hidden compartments of a vehicle transported from the Netherlands to Iceland, intended for distribution. No information pertaining to CVSS scores, affected software versions, patches, or technical workarounds is present.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.4.2026 | 10:35 Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Í ákæru kemur fram að fíkniefnin hafi verið falin í samtals 20 pakkningum í tveimur leynilegum hólfum frá Hollandi til Íslands. Myndin úr safni. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Þremenningarnir áfram í haldi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Þrír fá 5 ár fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Handtekinn með fíkniefni í Breiðholti » Fleiri tengdar fréttir Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn í sjö ára fangelsi og eina konu í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þremenningarnir voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 15.000 grömmum af ketamíni og 5.000 grömmum af MDMA-kristöllum. Var efnunum ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Voru brot þeirra heimfærð til 2. mgr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga og þáttur hvers þeirra um sig þannig að engin efni þóttu standa til að gera greinarmun á aðild þeirra þótt þátttaka þeirra í brotinu hafi verið verkskipt. Dómurinn féll 30. mars en var birtur í vikunni. Héraðssaksóknari höfðaði málið á hendur Söndru Dorotheu Becker, Sokol Dushku og Valmir Qeleposhi í desember. Voru þau ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 14.952,33 grömmum af ketamíni, með 87% styrkleika, sem samsvarar 100% af ketamínklóríði, og 4.999,46 grömmum af MDMA-kristöllum, með 83% styrkleika, sem samsvarar 99% af MDMA-klóríði. Var efnunum ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni. Frétt af mbl.is Langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á Flutt í bíl með Norrænu Fram kemur í ákærunni að fíkniefnin hafi verið falin í samtals 20 pakkningum í tveimur leynilegum hólfum undir framsætum bifreiðar sem flutt var frá Hollandi til Íslands. Fíkniefnin fundust í bifreiðinni og í poka á gólfi iðnaðarbils í Hafnarfirði þegar þau voru öll handtekin 19. september 2025. Við handtökuna voru þau byrjuð að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og undirbúa söludreifingu þeirra. Við leit í húsnæðinu, sem þeir Sokol og Valmir höfðu til umráða, fundust grammavog, smelluláspokar og íblöndunarefni falin í iðnaðarryksugu. Ákærðu skiptu með sér verkum í málinu. Frétt af mbl.is Langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á Fíkniefnin voru flutt frá Hollandi til Íslands falin í bifreið með ferjunni Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar að morgni miðvikudagsins 17. september 2025. mbl.is/Sigurður Bogi Ólík hlutverk Fram kemur að Sandra hafi flutt fíkniefnin til Íslands með ferjunni Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar 17. september í fyrra. Hún hélt síðan för sinni áfram til Hafnarfjarðar þar sem hún hitti Sokol 19. september og tók við 290.000 krónum í reiðufé. Hún fór síðan með honum í iðnaðarbilið. Þá átti Sokol átti í samskiptum við óþekktan mann dagana 23. júní–30. júlí og 10.–19. september 2025 þar sem lagt var á ráðin um innflutning og fjármögnun fíkniefna og 16. september um greiðslur til ákærðu Söndru vegna innflutningsins. Valmir kom að innflutningi og fjármögnun fíkniefna, fyrst með því að greiða samtals 29.968 evrur í gegnum reikning sinn hjá fjármálafyrirtækinu Revolut á óþekktan mann 23. júní 2025. Fjármunirnir voru endurgreiddir inn á sama reikning Valmir hjá Revolut 30. júní 2025 og stuttu síðar með því að greiða 40.036 evrur í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank 29. júlí 2025. Valmir fletti upp ferðaleið frá Egilsstöðum til Hafnarfjarðar í Google Maps 18. september 2025 og upplýsingarnar bárust Söndru í gegnum óþekktan mann en Valmir kom í iðnaðarbilið í Hafnarfirði 19. september þar sem Sokol og Sandra voru við bifreiðina með fíkniefnin. Hann náði skömmu síðar í kassa í bifreið sína sem innihélt iðnaðarryksugu, setti hana við bifreiðina með fíkniefnunum og sat áfram í bifreið sinni fyrir utan húsið á meðan Sokol og Sandra hófu að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og gerði hún Sokol viðvart þegar lögregla kom á vettvang. Konan játaði sök en mennirnir neituðu Við ákvörðun refsingar Söndru var litið til þess að hún játaði brot sitt greiðlega bæði hjá lögreglu á rannsóknarstigi og fyrir dómi og greindi skilmerkilega frá sínum þætti og aðild meðákærðu að svo miklu leyti sem hún gat. Þótti refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði. Refsing Sokol og Valmir, sem báðir neituðu sök, hvors um sig þótti hæfilega ákveðin fangelsi í sjö ár. Ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna. Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Þremenningarnir áfram í haldi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Þrír fá 5 ár fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Handtekinn með fíkniefni í Breiðholti » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslandsvinurinn búinn að fá nóg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Lax á kókaíni syndir linnulaust Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekið á gangandi vegfaranda Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss Hafa hótað og áreitt starfsfólk Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Ríkari réttur til kosningaþátttöku Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Íslandsvinurinn búinn að fá nóg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Lax á kókaíni syndir linnulaust Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Flokka Atlantshafsbandalagsríki í „góð“ og „slæm“ Ekið á konu á gangi við Skógarveg Endurræsing hjá Norðuráli gengið vel Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Ríkari réttur til kosningaþátttöku Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar

Share this article