Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Franski sjóherinn gerði 2,4 tonn af kókaíni upptæk

  • What: The French Navy seized 2.4 tons of cocaine from a smuggling vessel in the Pacific Ocean in cooperation with US authorities.
  • Impact: The seizure is part of an effort to combat increased drug smuggling in the Pacific, with nearly 12 tons of cocaine seized by French authorities in the past month.
Read Full Article →

2,4 tonn af kókaíni voru gerð upptæk af smyglbát í aðgerðum franska sjóhersins í samvinnu við bandarísk yfirvöld á Kyrrahafi í gær. Ekki kemur fram hverrar þjóðar áhöfnin er eða frá hvaða höfn báturinn sigldi frá. Áhöfnin fékk að halda áfram leið sinni eftir að kókaínið var gert upptækt, í samræmi við starfshætti undir alþjóðalögum. Síðastliðinn mánuð hafa frönsk yfirvöld gert tæp 12 tonn af kókaíni upptæk nærri Pólinesíu. Þar af voru á þrjár aðgerðir þar sem milli tvö og fimm tonn voru gerð upptæk í hvert sinn. Sameinuðu þjóðirnar hafa sagt að skipulögð glæpastarfsemi og smygl á kókaíni og metamfetamíni hafi aukist mikið í Kyrrahafi. Umfangsmiklu magni er smyglað af eiturlyfjum frá Norður- og Suður-Ameríku til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Á síðasta ári gerði franski sjóherinn 87,6 tonn af eiturlyfjum upptæk á heimsvísu, þar af 58 kíló af kókaíni.

Share this article