Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Enska ekki lengur allsráðandi á Spotify

Read Full Article →

Ný gögn frá Spotify sýna að enska er ekki lengur allsráðandi á streymisveitunni. Á meðal vinsælustu laga síðasta árs eru lög sungin á sextán tungumálum, sem eru töfalt fleiri tungumál en árið 2020. Tónlistarmaðurinn Bad Bunny trónir á toppnum, tónlist hans var mest spiluð á Spotify síðasta ár. Hann syngur alfarið á móðurmáli sínu, spænsku, og er fæddur á eyjunni Puerto Rico í Karíbahafi, sem er hluti af Bandaríkjunum, en þó ekki fullgilt ríki. Spænska söngkonan Rosalía nýtur einnig sífellt meiri vinsælda. Á nýjustu plötu sinni, LUX, syngur Rosalia á 14 tungumálum og mállýskum. Spotify tekur reglulega saman 50 lög sem eru mest spiluð í heiminum á þeirri stundu. Lög sungin á sextán tungumálum rötuðu inn á slíka lista á síðasta ári, þar á meðal lög á spænsku, kóresku, portúgölsku, arabísku, tyrknesku og indónesísku. Samkvæmt Spotify er brasilískt fönk sú tegund tónlistar sem er á mestri uppleið í heiminum en fast á eftir fylgja kóreskt pop (K-Pop) og rómanskt trap (e. Latin Trap). Trap-tónlist er undirtegund hipphopps. Tónlist á ensku er þó enn vinsælust, 14 af 20 vinsælustu plötum síðasta árs eru á ensku.

Share this article