Alma íbúðafélag, sem á ríflega eitt þúsund íbúðir, hagnaðist um tæplega 5,2 milljarða króna árið 2025 samanborið við 6,2 milljarða hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 5.000 milljónir króna vegna rekstrarársins 2025, að því er kemur fram í ársreikningi leigufélagsins. Heildartekjur samstæðunnar námu tæplega 6 milljörðum króna í fyrra samanborið við 5,7 milljarða árið áður. Leigutekjur námu 5.233 milljónum króna, sem samsvarar 1,4% vexti milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) Ölmu nam 4,3 milljörðum króna og jókst um 3,0% milli ára. Matsbreyting fjárfestingareigna nam 2 milljörðum króna, samanborið við 3,1 milljarð árið áður. Heildareignir samstæðunnar námu 121,5 milljörðum króna í lok árs 2025, en þar af voru fasteignir að andvirði 88,2 milljarðar króna. Eigið fé var 41,9 milljarðar króna. Um síðustu áramót átti félagið 1.004 íbúðir og 36 atvinnueignir. Á árinu 2025 voru 47 íbúðir seldar en 5 íbúðir keyptar. „Félagið hefur haldið áfram á þeirri vegferð að selja stakar og óhagkvæmar leigueiningar sem falla ekki að fjárfestingastefnu félagsins,“ segir í skýrslu stjórnar. „Gert er ráð fyrir smávægilegum samdrætti í langtímaleigutekjum vegna íbúða sem seldar voru í fyrra og þeirra sem seldar verða á þessu ári. Fjölgun langtímaleigueigna er ekki fyrirhuguð fyrr en 44 íbúðir á Heklureitnum verða afhentar félaginu á seinni hluta árs 2026,“ segir Ingólfur Árni Gunnarsson , framkvæmdastjóri Ölmu, í afkomutilkynningu. Sækja fram í skammtímaleigu Alma rekur skammtímaleigu í gegnum dótturfélagið Ylmu. Einingum í skammtímaleigu fjölgaði úr 99 í 105 á árinu 2025. Rekstrinum er útvistað til þriðja aðila. Tekjur Ylmu af skammtímaleigu námu 636 milljónum króna árið 2025, samanborið við 475 milljónir árið áður. Félagið rekur aukninguna til góðs ferðasumars 2025 og sterkri bókunarstöðu eigna sem teknar voru í rekstur á árinu 2024. „Miklar væntingar eru bundnar við að ferðasumarið 2026 verði gott og nái hámarki í kringum sólmyrkva í ágúst. Félagið gerir ráð fyrir að tekjur af skammtímaleigu haldi áfram að vaxa.“ Með 17 milljarða hlut í skráðu fasteignafélögunum Alma íbúðafélag er móðurfélag fjárfestingarfélagsins Brimgarða sem á stóran hlut í skráðu fasteignafélögunum Eik, Reitum og Heimum. Bókfært verðmæti hlutar samstæðunnar í Eik nam í lok síðasta árs 11,6 milljörðum króna og verðmæti hlutabréfa í Heimum og Reitum námu samtals 5,6 milljörðum króna. Alma íbúðafélag er í eigu Langasjávar sem er að stærstum hluta í eigu systkinanna Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gíslabarna sem oft eru kennd við heildverslunina Mata.