Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Landsbréf hagnast um tæpan milljarð

Read Full Article →

Landsbréf, dótturfélag Landsbankans, hagnaðist um 978 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við 1.272 milljóna króna hagnað árið áður. Stjórn mun leggja til 1.000 milljóna króna í arðgreiðslu á aðalfundi sem fyrirhugað er að halda í apríl, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi . Umsýsluþóknun og árangurstengdar þóknanir námu 2.380 milljónum króna í fyrra og jukust um 8,9% milli ára. Hreinar rekstrartekjur Landsbréfa námu 2.367 milljónum króna og drógust saman um 12,9% milli ára. Það skýrist að stærstum hluta af því að verðbreytingar verðbréfaeigna voru neikvæðar um 122 milljónir í fyrra, en jákvæðar um 432 milljónir árið 2024. Landsbréf reka 43 mismunandi sjóði með samtals um 21 þúsund fjárfesta. Í lok árs 2025 voru eignir í stýringu samtals um 602 milljarðar króna samanborið við 543 milljarða króna árið áður. Eignir Landsbréfa námu 5,1 milljarði króna í árslok 2025 og eigið fé var um 4,4 milljarðar króna. „Á svona tímum er gildi ábyrgrar eignastýringar mikið“ Í skýrslu stjórnar segir að þrátt fyrir nokkuð krefjandi markaðsaðstæður megi segja að almennt hafi ávöxtun sjóða félagsins verið ásættanleg á árinu að teknu tilliti til markaðsaðstæðna og í samanburði við samkeppnisaðila. „Verðbólga kom hægar niður á árinu 2025 en markaðsaðilar höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um minni spennu í efnahagslífinu þegar leið á árið virðist verðbólguþrýstingur enn vera töluverður í hagkerfinu og má gera ráð fyrir að enn verði nokkur bið eftir því að vextir lækka svo nokkru nemi.“ Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, segir að áfram sé veruleg óvissa erlendis með ófriði sem hefur neikvæð áhrif á markaði. Eins séu vísbendingar um kólnandi hagkerfi á Íslandi á sama tíma og erfiðlega gangi að ná niður verðbólgu. „Á svona tímum er gildi ábyrgrar eignastýringar mikið.“

Share this article