Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Landsnet greiðir 2,8 milljarða í arð

Read Full Article →

Landsnet hagnaðist um 44,9 milljónir dala, eða um 5,8 milljarða króna, á árinu 2025 samanborið við 43,1 milljónar dala hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að arður að fjárhæð 22,5 milljónir dala, eða tæplega 2,8 milljarðar króna, verði greiddur til hluthafa vegna rekstrarársins 2025. Landsnet er í 93,2% eigu ríkissjóðs og 6,8% eigu Orkuveitu Reykjavíkur. „Rekstur ársins gekk vel og afkoma félagsins var í takti við áætlanir þrátt fyrir ýmsar áskoranir,“ segir í uppgjörstilkynningu Landsnets. Tekjur Landsnets jukust um 10,2% milli ára og námu 208,3 milljónum dala, eða um 26,7 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður jókst um 9,1% og nam 76,9 milljónum dala eða um 9,9 milljörðum króna. Heildareignir félagsins námu 1.372 milljónum dala, eða um 171,7 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé félagsins var 665,5 milljónir dala, eða um 83,3 milljarðar króna. Fjárfesting ársins nam 118 milljónum dala, eða um 14,9 milljörðum króna, samanborið við 83 milljónir dala árið áður. „ Árið 2025 var eitt stærsta framkvæmdaár félagsins. Áhersla var lögð á styrkingu flutningskerfisins samhliða nauðsynlegu viðhaldi víða um land. Stærsta framkvæmdarverkefni ársins var tenging Vestmannaeyja við flutningskerfið með lagningu tveggja nýrra sæstrengja og gekk framkvæmdin vel. Þá var stigið mikilvægt skref í eflingu afhendingaröryggis og afhendingargetu á Norðausturlandi með viljayfirlýsingu um aðgerðir til að styrkja raforkukerfið á svæðinu,“ segir Ragna Árnadóttir , forstjóri Landsnets. „Eftirspurn eftir raforku mun aukast til lengri tíma og orkuskipti kalla á öflugra og sveigjanlegra flutningskerfi. Hlutverk okkar er að tryggja að kerfið styðji við þá þróun með traustum innviðum. Með sterkum rekstri og skýrri forgangsröðun verkefna er Landsnet vel í stakk búið til að efla flutningskerfið og skapa virði fyrir samfélag og atvinnulíf.“ Hún kemur einnig inn á þátt Landsnets þegar kemur að samkeppnishæfni Íslands. Ragna segir að gjaldskrá félagsins þurfi samkvæmt því regluverki sem fyrirtækið starfi undir, að endurspegla raunverulegan kostnað við uppbyggingu og rekstur flutningskerfisins. „Þegar samkeppnishæfni Íslands er metin þarf að horfa til heildarkostnaðar raforku, afhendingaröryggis og áfallaþols kerfisins. Flutningskerfið þarf að vera í stakk búið að mæta áföllum án utanaðkomandi stuðnings. Öruggur og stöðugur rekstur þess er forsenda uppbyggingar samfélags og atvinnulífs,“ segir Ragna. Sjá einnig Kveður við nýjan tón í orkumálum

Share this article