Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samdráttur í hagkerfinu á fjórða ársfjórðungi

Read Full Article →

Hagvöxtur, þ.e. breyting á vergri landsframleiðslu á föstu verðlagi á milli ára, nam 1,3% á árinu 2025 miðað við bráðabirgðatölur. Talið er að nafnvirði vergrar landsframleiðslu hafi verið um 4.956 milljarðar króna. Á fjórða ársfjórðungi 2025 dróst landsframleiðslan saman um 0,6% frá fyrra ári og um 0,8% frá fyrri ársfjórðungi. Þetta kemur fram í Þjóðhagsreikningi fyrir árið 2025 sem Hagstofan birti í morgun. Þar kemur fram að raunaukning einkaneyslu um 4,3% hafi verið megindrifkraftur hagvaxtar á síðasta ári en til samanburðar var vöxturinn 0,9% árið 2024. Jafnframt skilaði aukin fjármunamyndun, aukin samneysla og birgðabreytingar jákvæðu framlagi. Vöxtur þjóðarútgjalda á milli ára var um 3,9% en á móti vó neikvætt framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar. Á fjórða ársfjórðungi er aftur á móti áætlað að þjóðarútgjöld hafi dregist saman um 0,5% að raunvirði. EInkaneysla jókst um 5,5% að raunvirði miðað við sama tímabil fyrra árs. Aukning innlendrar neyslu skýrðist meðal annars af því að vöxtur var í kaupum heimilanna á flestum neysluvörum, þó samdráttur hafi til dæmis verið í áfengi og tóbaki. Mikil aukning var í kaupum heimilanna á bifreiðum, fjórða ársfjórðunginn í röð eftir samdráttarskeið árið 2024. Fyrir áramót myndaðist hvati til bifreiðarkaupa vegna breytinga á vörugjöldum á bensín- og dísilbílum og lækkunar styrks til kaupa á rafbílum en fullur styrkur var veittur til áramóta. Einnig var töluverður vöxtur í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga á ferðalögum erlendis ásamt vægum vexti í húsnæðislið. Áætluð magnaukning samneyslu fyrir árið 2025 nemur 1,2% en um 1,1% á fjórða ársfjórðungi. Að nafnvirði er áætlað að samneysla hins opinbera hafi aukist um 8,8% frá fyrra ári og verðbreyting samneyslu um 7,5%. Hvað fjármunamyndun varðar litast niðurstöður hvers ársfjórðungs af því að innflutningur hvers kyns tölvuíhluta fyrir gagnaver jókst verulega á fjórða ársfjórðungi ársins 2024 sem hélt áfram á fyrsta og öðrum ársfjórðungi ársins 2025. Á þriðja ársfjórðungi fór talsvert að draga úr þeim innflutningi og var hann hlutfallslega lítill á fjórða ársfjórðungi ársins 2025. Þá myndaðist hvati til fjárfestinga í bifreiðakaupum þegar leið á árið og er áætlað að fjármunamyndun ársins í bifreiðakaupum hafi aukist um 72%.

Share this article