Sjóvá hagnaðist um 238 milljónir króna á fyrsta árfjórðungi, samanborið við 540 milljóna tap á sama tímabili í fyrra. Bætt afkoma félagsins skýrist einkum af því að afkoma fjárfestinga á fjórðungnum batnaði umtalsvert en var þó áfram í mínus. Sjóvá birti árshlutauppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 790 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 821 milljóna hagnað á sama tíma í fyrra. Samsett hlutfall var 90,9%. Tekjur Sjóvá af vátryggingasamningum jukust um 3,1% milli ára og námu 8,6 milljörðum króna. Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 201 milljón, samanborið við 1.126 milljóna tap á fyrsta fjórðungi 2025. Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu var neikvæð um 0,3%, en neikvæð um 1,0% á sama tíma í fyrra. Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, segir að tíðarfar hafi verið nokkuð hagfellt og tjónaþróun undir áætlunum á fyrsta ársfjórðungi. Þar muni mest um jákvæða þróun í ökutækjatryggingum á milli ára ásamt því að ekkert stórtjón henti á fjórðungnum. Hvað fjárfestingarstarfsemina varðar segir hann að árið hafi hafist með góðum takti á verðbréfamörkuðum en eftir því sem liðið hefur á það hafu versnandi efnahagshorfur og ókyrrð á mörkuðum um allan heim haft áhrif. Innlendir markaðir hafi fundið fyrir þeirri þróun. „Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun á fjórðungnum fyrir utan skráð hlutabréf þar sem ávöxtun var neikvæð um 7,4%. Þá var ávöxtun ríkisskuldabréfa 0,4%, annarra skuldabréfa 3,2% og safnsins alls neikvæð um 0,3%.“ Horfur fyrir árið 2026 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2026 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.800 – 2.500 m.kr. og samsett hlutfall 93 – 95%.