Skagi hf. tapaði 336 milljónum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins, samanborið við 1,4 milljarða króna tap á sama tímabili í fyrra. Tap af grunnrekstri nam 81 milljón króna, samanborið við 284 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður á hlut var neikvæður um 0,18 krónur og arðsemi eigin fjár var neikvæð um 5,7% á ársgrundvelli. Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, segir reksturinn hafa gengið ágætlega á fjórðungnum. „Rekstur samstæðunnar gekk ágætlega á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Tekjur og afkoma af grunnrekstri jukust hvort tveggja milli ára og afkoma grunnrekstrar var umfram áætlun á tímabilinu,“ segir Haraldur. Hann segir jákvæða afkomu tryggingarekstrar hafa staðið upp úr á fjórðungnum, enda sé fyrsti ársfjórðungur jafnan þungur vegna árstíðarbundins tjónaþunga. Besta tryggingaafkoma frá 2018 Tekjur af vátryggingarsamningum jukust um 6,9% á milli ára og námu rúmum átta milljörðum króna. Afkoma tryggingarekstrar var jákvæð um 138 milljónir króna, samanborið við 51 milljónar króna tap á sama tímabili í fyrra. Samsett hlutfall var 98,3%, samanborið við 100,7% á fyrsta fjórðungi í fyrra. Samkvæmt fjárfestakynningu Skaga er þetta besta samsetta hlutfall félagsins á fyrsta ársfjórðungi frá árinu 2018. „Afkoma af tryggingastarfsemi hélt áfram að aukast og var samsett hlutfall fyrsta ársfjórðungs það lægsta síðan 2018. Afkoma trygginga á fjórðungnum var í heild mjög sterk, þrátt fyrir að veðurfar og nokkur stærri tjón í mars hafi haft neikvæð áhrif,“ segir Haraldur. Iðgjöld í líf- og sjúkdómatryggingum jukust um 11,2% á fyrsta fjórðungi. Haraldur segir það endurspegla áherslu félagsins á vöxt í þeim greinaflokki. Þá hafi samstarf VÍS og Íslandsbanka áfram skilað góðum árangri og góður taktur verið í sölu vátrygginga. Fjármálastarfsemin undir væntingum Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 714 milljónum króna á fjórðungnum, samanborið við 780 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Það jafngildir tæplega 9% samdrætti á milli ára. Afkoma fjármálastarfsemi var neikvæð um 20 milljónir króna fyrir skatta en hafði verið neikvæð um 34 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Afkoman batnaði því lítillega þrátt fyrir lægri tekjur. Haraldur segir frávik frá áætlun hjá Fossum einkum skýrast af lægri tekjum af fyrirtækjaráðgjöf og því að lækkanir á mörkuðum undir lok fjórðungsins hafi haft neikvæð áhrif á fjármunatekjur bankans. Vaxtamunur Fossa nam 152 milljónum króna á tímabilinu og var sá mesti frá upphafi, samkvæmt Haraldi. Afkoma Fossa var jákvæð um þrjár milljónir króna fyrir skatta. Tekjur Íslenskra verðbréfa námu 225 milljónum króna á fyrsta fjórðungi og jukust um 14% frá fyrra ári. Afkoma félagsins var þó neikvæð vegna kostnaðar við starfslok í tengslum við fækkun starfsfólks. Eignir í stýringu hjá félaginu námu 227 milljörðum króna í lok tímabilsins, en eignir í stýringu hjá samstæðunni allri námu 251 milljarði króna. Fjárfestingar undir markmiðum Fjárfestingartekjur Skaga námu 366 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, sem jafngildir 0,7% ávöxtun. Til samanburðar lækkaði viðmiðunarvísitala safnsins um 0,8% á tímabilinu. Afkoma fjárfestinga var því umfram viðmiðunarvísitölu en undir langtímamarkmiðum félagsins. Í fjárfestakynningu kemur fram að veik hlutabréfamarkaðsþróun hafi haft neikvæð áhrif á fjárfestingatekjur, en skráð hlutabréf höfðu neikvæð áhrif sem námu 336 milljónum króna á fjórðungnum. „Afkoma fjárfestinga var ágæt í ljósi markaðsaðstæðna en dregið hafði verið nokkuð úr vægi skráðra hlutabréfa í lok síðasta árs sem og upphafi þessa árs,“ segir Haraldur. Hann segir alla eignaflokka hafa skilað afkomu umfram viðmið, að undanskildum ríkisskuldabréfum. Mest hafi afkoman verið af öðrum skuldabréfum, skráðum og óskráðum skuldabréfum fyrirtækja, eða rúmlega 501 milljón króna. Fjárfestingasafn tryggingarekstrarins nam 50,9 milljörðum króna í lok mars. Vægi skráðra hlutabréfa var lækkað á fjórðungnum en vægi fyrirtækjaskuldabréfa aukið. Stefna að 180 milljóna kostnaðarlækkun Í kjölfar þess að samrunaviðræðum Skaga og Íslandsbanka var slitið hefur stjórn Skaga farið yfir stefnu samstæðunnar. Félagið hyggst einfalda stjórnskipulag og ná fram auknu hagræði í rekstri. Steingrímur Arnar Finnsson mun láta af störfum sem forstjóri Fossa og Brynjar Þór Hreinsson tekur við. Steingrímur mun áfram gegna ráðgjafarhlutverki fyrir félagið á næstu misserum. Sjá einnig Forstjóraskipti hjá Fossum og hagræðing hjá Skaga Samhliða verður starfsemi móðurfélagsins einfölduð. Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars. Skagi áætlar að tilfærsla verkefna, hagræðing og einföldun á starfsemi móðurfélags geti skilað allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni þegar aðgerðirnar eru að fullu komnar til framkvæmda. „Í gær tilkynntum við um uppfærðar áherslur í kjölfar stefnurýni sem miða að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára með aðgerðum í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar,“ segir Haraldur. Heildareignir Skaga námu 87,2 milljörðum króna í lok mars og eigið fé 22,7 milljörðum króna. Gjaldþolshlutfall samstæðunnar var 1,27 í lok fjórðungsins og eiginfjárhlutfall Fossa var 22,6%.