Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Haraldur selur í Skaga fyrir 95 milljónir

Read Full Article →

Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, seldi í dag 5 milljónir hluta eða um 0,26% hlut í fjármálafyrirtækinu fyrir 94,5 milljónir króna. Gengið í viðskiptunum var 18,9 krónur á hlut, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið H3 ehf., í eigu Haraldar og eiginkonu hans Ragnhildar Þóru Ágústsdóttur, er í hópi 10 stærstu hluthafa Skaga. Félagið átti fyrir viðskiptin í dag 2,9% eignarhlut í Skaga. „Viðskiptin varða lítinn hluta af eign félagsins í Skaga og eru eðlilegur hluti af eignastýringu og áhættudreifingu,“ segir í tilkynningunni. Tekið er fram að H3 ehf. verði áfram á meðal stærstu hluthafa Skaga. Í kjölfar viðskiptanna á H3 ehf. tæplega 51 milljón hluta í Skaga, eða 2,63% eignarhlut sem er 959 milljónir króna að markaðsvirði. Skagi er móðurfélag VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa. Haraldur tók við starfi forstjóri Skaga í október 2023, í kjölfar samruna VÍS og Fossa. Hann er einn stofnenda Fossa fjárfestingarbanka og var forstjóri félagsins á árunum 2015-2023. Skagi birti árshlutauppgjör á miðvikudaginn síðasta. Félagið tapaði 336 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 1,4 milljarða tap á sama tímabili í fyrra. Afkoma af vátryggingasamningum nam 138 milljónum króna á fjórðungnum og var samsett hlutfall á fyrsta fjórðungi það lægsta síðan 2018. Sjá einnig Skagi tapaði 336 milljónum á fyrsta árs­fjórðungi Degi áður tilkynnti Skagi um breytingar á starfsemi móðurfélagsins með áherslu á einföldun og kostnaðarhagræði.

Share this article