Lýður Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Bakkavör, keypti í fyrra 4,54% eignarhlut í Skógarböðum á Akureyri og er nú fjórði stærsti hluthafi félagsins. Seljandinn er veitufyrirtækið Norðurorka sem er í eigu Akureyrarbæjar og fimm nágrannasveitarfélaga. Norðurorka, sem kom að uppbyggingu Skógarbaða á sínum tíma, tilkynnti í byrjun september sl. um að það hefði ákveðið að setja 4,5% eignarhlut sinn í Skógarböðum í opið söluferli. Veitufyrirtækið sagði að með sölunni horfði það til þess að einbeita sér enn frekar að kjarnastarfsemi sinni. Kaupandinn er SK601 ehf., dótturfélag Frigusar ehf., fjárfestingarfélags Lýðs. Ekki fengust upplýsingar um kaupverðið en Norðurorka segir í svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins að efni kaupsamningsins sé trúnaðarmál. Þess má þó geta að virði hlutafjár Skógarbaða var metið á 2,9 milljarða króna árið 2024 þegar Birkir Bjarnason fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, stækkaði hlut sinn í félaginu og keypti 10% hlut í Skógarböðum af Höld -baðfélagi ehf., systurfélagi Hölds – Bílaleigu Akureyrar. Sjá einnig Birkir stækkar við sig í Skógarböðum Birkir er í dag næst stærsti hluthafi Skógarbaða með 20,4% hlut í gegnum fjárfestingarfélag sitt Bjarnason Holding ehf. Stærstu hluthafar Skógarbaða Hluthafi Eignarhlutur N10b ehf. 57,7% Bjarnason Holding ehf. 20,4% Rafeyri ehf. 11,3% SK601 ehf. 4,5% N10 ehf. 3,0% Vað ehf. 3,0% Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .