Árið 2025 var metár hjá Skógarböðum ehf. Félagið skilaði 248 milljóna króna hagnaði í fyrra samanborið við 210 milljóna króna hagnað árið 2024. Hagnaður félagsins jókst um 18% milli ára. Velta Skógarbaða jókst um tæplega 190 milljónir króna eða 19% milli ára og nam 1.176 milljónum króna í fyrra. Rekstrargjöld jukust um 14,7% og námu 775 milljónum. Þar af voru laun og tengd gjöld 386 milljónir en ársverk voru 32,6 samanborið við 28,0 árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins fór úr 311 milljónum í 401 milljón króna milli ára. Eignir Skógarbaða ehf. voru bókfærðar á rúmlega 2,5 milljarða króna í árslok 2025, samanborið við 1,5 milljarða árið áður. Stærsta eign félagsins er fasteignin sem var metin á 1,7 milljarða. Eigið fé var um 1.079 milljónir og langtímaskuldir 1.054 milljónir. 6,5 milljarða fjárfesting Skógarböðin, sem reka baðaðstöðu og veitingastað gegnt Akureyri við rætur Vaðlaheiðar, eru í meirihlutaeigu hjónanna Finns Aðalbjörnssonar og Sigríðar Maríu Hammer. Þau keyptu jörðina í september 2020 og framkvæmdin sjálf tók aðeins fjórtán mánuði og opnaði baðlónið í maí 2022. Hugmyndin að Skógarböðunum kviknaði út frá því að heitt vatn hafði runnið ónýtt til sjávar úr heitavatnsæð sem opnaðist þegar borað var fyrir Vaðlaheiðargöngum árið 2014. Skógarböðin luku í fyrra framkvæmdum við stækkun á baðaðstöðunni um 700 fermetra og fór lónið úr 500 fermetrum í 1.200 fermetra. Nýjar laugar voru opnaðar fyrir gestum í lok september. Félagið vinnur að því að reisa 120 herbergja hótel með heilsulind, veitingaaðstöðu og ráðstefnusal við hlið hennar og eru áætluð verklok á árinu 2027. Gert hefur verið ráð fyrir því að fjöldi ársstarfa við Skógarböðin verði um 120 talsins þegar hótelið opnar. Íslandsbanki veitti Skógarböðum í fyrra framkvæmdalán til fjármögnunar á hótelverkefninu sem er í höndum dótturfélagsins Hótels Gjár. Sjá einnig Íslandsbanki fjármagnar nýtt hótel við Skógarböðin Finnur sagði í nýlegu viðtali á Rás 2 að heildarfjárfesting verkefnisins nemi um sex og hálfum milljarði króna. Í tengslum við framkvæmdafjármögnunina vegna uppbyggingar hótelsins skuldbatt félagið sig til að greiða ekki út arð í 7-8 ár. Rekstrarhagnaður baðlónsins fer því í uppbygginguna. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .